Hrossaræktarsamband SkagafjarðarEnglish languageRSS

Góð skráning á Síðsumarssýningu kynbótahrossa á Vindheimamelum

Nokkur orð um framkvæmd sýningarinnar

Nú er skráningu á kynbótasýningu lokið.  Það eru rétt um 100 hross skráð.  Þar af leiðandi munu dómar hefjast að morgni þriðjudagsins 27. júlí.  Fyrirkomulag verður það sama og var á síðustu sýningu, þ.e. að byggingadómar fara fram í Saurbæ og hæfileikadómar á kynbótavellinum á Vindheimamelum og deginum skipt upp í 3 holl.  Yfirlitssýning verður á föstudag og fer fram á aðalvellinum.  Gert er ráð fyrir að verðlaunaafhending fari fram á laugardegi.

 

Röðun í holl verða birt hér á vefnum eigi síðar en á sunnudag.

 

Af gefnu tilefni skal taka það fram að þar sem kynbótasýningin er partur af dagskrá stórmótsins Fáka-Flugs þá verður byrjað að selja inn á svæðið á föstudag enda búist við að margir af þeim sem þá verði komnir á svæðið muni vera þar alla helgina.  Miðaverð er 8.000 krónur og innifalið í því er tjaldstæði, dansleikir o.fl.  Þeir sem eru eingöngu komnir til þess að vera viðstaddir yfirlitssýningu kynbótahrossa munu fá miðann endurgreiddan að fullu við hliðið ef þeir kjósa að yfirgefa svæðið að lokinni sýningu á föstudaginn.

Senda grein Senda grein  |  Prenta grein (nýr gluggi opnast) Prenta grein  |   Deila