Stóðhesturinn Hrímnir frá Ósi verður hjá Hrossaræktarsambandi Skagfirðinga í seinna gangmáli í sumar. Hestinum verður væntanlega sleppt í hólf 3. ágúst á Hólum í Hjaltadal. Verð til félagsmanna HSS er 68. þúsund m. vsk. Tekið er á móti pöntunum á Leiðbeiningamiðstöðinni 455-7100/ee@bondi.is og hjá Ingimari Ingimarssyni 891-9560.
Hrímnir frá Ósi er 5 vetra gamall, grár að lit undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum og Hélu frá Ósi sem er dóttir Gusts frá Hóli. Hrímnir hlaut m.a. 9,5 fyrir tölt og brokk og 9 fyrir vilja og geðslag, fegurð í reið og stökk. Fyrir sköpulag hlaut hann 8,08, þar af 8,5 fyrir bak og lend, samræmi, hófa og prúðleika.