Hrossaræktarsamband SkagafjarðarEnglish languageRSS

Loksins fréttir

Sumarið er tíminn, þó allt sé í pesti.
Fullt er hægt að bölsótast yfir andsk. pestinni, en staðan er þannig á þessum bæ að það er ekkert riðið út. Ekki gagnast að tuða mikið yfir því, því þannig er bara staðan.
Við sitjum þó ekki aðgerðarlaus, því af nógu er að taka. Auður er búin að þrífa hesthúsið, Brynjólfur er á fullu að koma niður nýjum girðingastaurum og Hafþór Ingi rúntar með í vagninum.
Við erum búin að fá nokkur folöld, en ein hryssa er eftir óköstuð. Við erum búin að fá rauðan tvístjörnóttan hest undan Spes frá Fagranesi og Eld frá Fagranesi. Það var reyndar ekki skipulagður getnaður, en folinn er ansi smart. Léttur í hreyfingum og fallegur. Næst kastaði Spurning, rauðri hryssu undan Eldinum okkar. Hún er virkilega flott. Með hátt settan háls og fer um á flottu brokki. Þriðja folaldið er undan Eldey og Feng frá Sauðárkróki. Þetta er þriðja folaldið sem við fáum undan Eldey, og þriðji hesturinn. Þessi er brúnn einlitur, svolítill baukur í byggingu, en með geggjaðan fótaburð. Brokkar um og lyftir alveg vígalega. Neista er enn óköstuð, en hún er fylfull við Dofra frá Steinnesi.
Búið er að halda Spurningu aftur undir Eldinn, og við fengum eina hryssu lánaða frá Skuggabjörgum til að halda undir Eldinn líka. Til er hryssan Uplyfting frá Skuggabjörgum sem við eigum, undan þessari hryssu og Fagra, sérlega skemmtileg og flott hryssa, þannig okkur datt í hug að reynað fá aðra til, og halda mömmunni undir Eldinn.
Eldey og Fegurð fóru í dag undir Smára frá Skagaströnd. Við erum mjög spennt fyrir því hvað það gefur af sér næsta sumar. Næst á dagskrá er að fara með Drottningu undir Meyvant frá Feti, Freystingu undir Prins frá Garði og Von undir Sindra frá Vatnsleysu, sjáum svo til hvað við gerum við Neistu.

Senda grein Senda grein  |  Prenta grein (nýr gluggi opnast) Prenta grein  |   Deila