Dofri frá SteinnesiVið fórum með 2 hryssur undir glæsigripinn hann Dofra frá Steinnesi í gærkvöldi. Drift frá Miðsitju og Neista frá Fagranesi fóru á rúntinn með folöldin sín. Dofri er í hólfi á Syðri-Völlum í Vestursýslunni. Hann kom hlaupandi og tók á móti þeim, ferlega flottur foli. Dofri er með 8.22 í aðaleinkunn, 4.vetra. 8,5 fyrir háls, samræmi, hófa, tölt, brokk, stökk, vilja og fegurð í reið. |