Komin úr ferð og folöldin öll komin.Þá er glæsilegri og nánast ólýsanlegri ferð að ljúka, þvílíkur snilldarhópur og sól og blíða alla dagana. Við ríðum hrossunum heim í dag frá Vindheimamelum. Þá taka við spennandi tamningar á tryppunum sem komu ekki með í ferðina.
Folöldin eru öll mætt, fengum eins og fyrr segir hest undan Eldey og Kiljan, hann er nefndur Steinnes. Við fengum hryssu undan Prins og Drift, rauða stjörnótta. Að lokum fengum við jarpskjótta hryssu undan Neistu og Glampa, sú hefur hlotið nafnið Diskódís.
Mjög falleg folöld og spennandi gripir.
Eldey er núna hjá Feng frá Sauðárkróki. Við fengum svo 2 tolla undir Dofra frá Steinnesi og förum með 2 hryssur þangað sem fyrst. |