Hrossaræktarsamband SkagafjarðarEnglish languageRSS

Sumarið er tíminn

Þrátt fyrir þráláta norðan-golu er alltaf nóg að gera. Brynjólfur er búinn að halda 2 reiðnámskeið á Ísafirði fyrir hestamannafélagið Hendingu. Fyrra námskeiðið var fyrir mánuði síðan og seinna námsskeiðið var núna síðustu helgi. Við erum með slatta af hrossum í tamningu, og svo erum við að járna og þjálfa upp "gamla-gengið" sem ætlar að bera okkur á Kaldármela eftir 2 vikur. Planið er að ríða í góðra vina hópi úr Skagafirði vestur á Kaldármela og auðvitað til baka aftur. Sú ferð tekur nánast 3 vikur og við hlökkum mikið til. Engin folöld eru komin enn, en það styttist í þau. Væntanleg eru 3 stykki, undan Kiljan frá Steinnesi, Prins frá Garði og Glampa frá Vatnsleysu.
Senda grein Senda grein  |  Prenta grein (nýr gluggi opnast) Prenta grein  |   Deila