Hrossaræktarsamband SkagafjarðarEnglish languageRSS

Varmahlíðarskóli sigraði Grunnskólamótið í hestaíþróttum.

Fyrsta mótið var haldið í Reiðhöllinni Svaðastöðum og þar tók Varmahlíðarskóli strax forrystuna og hélt henni allt til enda.  Leikar fóru þannig að Varmahlíðarskóli sigraði með 178 stig, í öðru sæti var Grunnskóli Húnaþings vestra með 157 stig og í þriðja sæti varð Húnavallaskóli með 142 stig.  Ljóst er að í Varmahlíðarskóla er mikið af ungum og efnilegum knöpum.  Krakkarnir voru vel ríðandi og mættu einbeitt og samheldin til leiks.  Það verður gaman að fylgjast með þessum krökkum í framtíðinni.  Nánar um úrslit mótsins má finna á heimasíðu Hestamannafélagsins Stíganda.

Senda grein Senda grein  |  Prenta grein (nýr gluggi opnast) Prenta grein  |   Deila