Hrossaræktarsamband SkagafjarðarEnglish languageRSS

Allt á fullt

Allt er á fullu í Fagranesi þessa dagana. Haugur af hestum inni, flest frá okkur sjálfum en nokkur í tamningu. Auður er nýkomin að sunnan, búin að læra nudd, og Brynjólfur er að púslast saman eftir langa og leiðinlega tognun í baki. Við erum búin að hamast við að járna og koma hrossunum aftur í trimm. Spennandi tímar framundan og ekkert nema gleði gleði gleði ... og Gleðilega páska :)
Senda grein Senda grein  |  Prenta grein (nýr gluggi opnast) Prenta grein  |   Deila