Hin víðfræga stóðrétt Laufskálarétt í Hjaltadal fer fram laugardaginn 27. sept. n.k. Fjöldi þeirra sem sækja réttina hefur aukist ár frá ári og í kringum hana skapast einstök stemning. Líkt og síðustu ár verður ýmislegt gert til að skemmta þeim sem sækja Skagafjörð heim þessa helgi ? en fullyrða má að dagskráin þessa ?Laufskálaréttarhelgi? sé sú glæsilegasta fram að þessu.
Á föstudeginum 26. Sept. verður sölusýning hrossa á félagsvæði Léttfeta. Um kvöldið verður síðan slegið upp stórhátíð í Reiðhöllinni Svaðastaðir, þar koma fram margir af fremstu skeiðhestum landsins í skeiðkeppni, verðlaun verða í boði Sparisjóðs Skagafjarðar. Þá munu þeir feðgar Þórhallur Sigurðsson og Þórhallur Þórhallsson eða " Laddi og Þórhallur "junior" að troða upp saman, með uppistandi, tónlist og alskyns gríni, ásamt Hirti Howser undirleikara. Ladda þarf ekki að kynna og Þórhallur sonur hans var valinn ?fyndnasti maður Íslands? á síðasta ári. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem þeir feðgar koma fram saman þannig að hér er sannarlega um mikinn grínviðburð að ræða!
Laugardagskvöldið 27. sept. verður svo slegið upp glæsilegum stóðréttardansleik í reiðhöllinni þar sem stórhljómsveitin Von skemmtir ásamt Björgvin Halldórssyni og Stefáni Hilmarssyni.
Takið ?Laufskálaréttarhelgina? 26. ? 28. sept. frá, forsala og nánari tímasetningar verða auglýstar síðar.