
Hanar frá Tjörn á Vatnsnesi
Til gamans og fróðleiks má geta þess að Landnámshænsnastofninn á Tjörn verður 30 ára gamall nú seinnipartinn í ágúst.
Á Landbúnaðarsýningunni og bændahátíðinni Sveitasælu í Skagafirði verður stórsýning á Íslensku Landnámshænunni.
Hænurnar og hanarnir frá Tjörn á Vatnsnesi eru margverðlaunaðir fuglar frá fyrri sýningum vitt og breitt um landið.
Á Landbúnaðarsýningunni verður mikil fjölbreytni af fuglum til sýnis og sýndir verða nokkrir tugir fullorðinna fugla þar ásamt því sem hægt verður að skoða unga og kjúklinga á ýmsum aldri á sýningunni.
Jafnframt verða sýndir ungar að skríða úr eggjum, dagsgamlir ungar og margt fleira er viðkemur Landnámshænunni.
Aldursforsetinn ætlar að svo að heiðra okkur með nærveru sinni í ár eins og sl.ár en hún verður 13 ára nú í september.
Ýmis konar fróðleikur er í boði, sýnd verða mismunandi egg, lögun þeirra og litur og egg sem eru afbrigðileg, bæði að stærð og lögun.
Þá verður fræðsla í boði um fuglana, allt frá að velja egg til útungunar, bæði fyrir vélar og undir hænu, útungunin sjálf, uppeldi, fóðrun, aðstaða, aðbúnaður og margt fleira. Sýningar gestum verður svo boðið uppá að kjósa fallegasta fuglinn á sýningunni, bæði fallegustu hænuna og fallegasta hanann. Úrslitin úr kosningunni verða svo kynnt á lokadegi sýningarinnar.
Nýr kynningarbæklingur er komin út og verður honum dreyft á sýningarsvæðinu ásamt blaði félagsisns sem þá verður komið út.
Jafnframt verður hægt að kaupa ýmsa minja og auglýsingargripi um Landnámshænuna en þar má nefna boli, barmmerki, póstkort, ísskápssegla, dagatöl og margt fleira. Þá verða bæði til sölu egg til útungunar og egg til matar ásamt því sem hægt verður að kaupa fugla á ýmsum aldri á sýningunni. Boðið verður upp á spjall og spurningum svarað ef einhverjar eru í sambandi við Landnámshænuna eða hvað eina sem henni viðkemur og allir eru velkomnir á sýninarsvæði hennar.
Ræktandinn sjálfur verður á staðnum alla dagana til skrafs og ráðagerða.
Skoðið Landnámshænuna okkar, kynnist henni og sjáið hvað hún er fjölbreytileg, falleg og skemmtileg.
Með kveðju
Júlíus Már Baldursson
Ræktandi
Tjörn Vatnsnesi