Þær nýjungar verða í ár að kvöldskemmtun verður föstudags- og laugardagskvöldið og einnig verður boðið upp á skemmtidagskrá eftir hádegið á sunnudaginn en þá munum við fá hina landsþekktu Söngvaborg í heimsókn, ásamt þeim Siggu Beinteins, Maríu Björk og fylgdarliði.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Einar K. Guðfinnsson mun setja sýninguna kl 18 föstudaginn 15. ágúst og strax á eftir getur fólk farið að gæða sér á grillmat og fylgst með keppni í hver sé fjölhæfasti bóndi norðanlands en þar á eftir verður forkeppni í tölti í samstarfi við Hestamannafélagið Léttfeta á Sauðárkróki. Á laugardagskvöldinu verður svo úrslitin í tölti ásamt kappreiðum en bráðskemmtilegir skagfirskir skemmtikraftar stíga einnig á svið og skemmta gestum milli atriða.
Annað sem verður um að vera:
Vaskir kappar frá Vinnuvélum Símonar munu sjá um að setja upp og stjórna þrautabraut fyrir gröfumenn, þar sem þeir keppa í óhefðbundnum þrautum um færni sína á gröfu.
Smalahundasýning - kálfasýning - hrútasýning - umhverfisverðlaun Skagafjarðar veitt - ásamt fjölmörgum fræðsluerindum um búfénað.
Þetta er aðeins lítið brot af því sem verður um að vera en dagskráin mun liggja fyrir núna allra næstu daga.