Hrossaræktarsamband SkagafjarðarEnglish languageRSS

Að bæta reiðhestinn

Leiðréttingarvinna Hólaskóla á Tekið til kostanna

Reiðkennarar Hólaskóla ásamt nemendum reiðkennarabrautar standa fyrir kennslusýningu á stórsýningunni ?Tekið til kostanna? sem fram fer dagana 24.-26. apríl. Einn þáttur í sýningunni verður leiðréttingavinna þar sem unnið verður með hesta með mismunandi vandamál undir stjórn reiðkennara Hólaskóla.

Eigandi hests eða knapi á hans vegum sýnir hestinn í Svaðastaðahöllinni og gerir grein fyrir vandamálum áður en þjálfunin hefst. Unnið verður með hvern hest þrisvar sinnum og vandamálið og vinnubrögðin við lausn þess útskýrð um leið.

Skólinn óskar eftir hestum til að nota í verkefninu.Þeir þurfa að vera heilbrigðir, 6 til 12 vetra gamlir og viðfangsefnið t.d. taumstífni, stendur ekki kyrr, erfitt að komast á bak, erfitt að stoppa, spenna, hræðsla, gan, rokur, stífni, frekja í umgengni, eða að hesturinn er skakkur, taumskakkur, bundinn, klárgengur, brokkið brotið og óöruggt svo eitthvað sé nefnt.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt senda upplýsingar á Víking Gunnarsson á netfangið vikingur@holar.is eða í síma 455 6345. Fram þarf að koma aldur hestsins, staðsetning, þjálfunarástand og vandamál ásamt nafni og símanúmeri umsjónarmanns.

Ekkert gjald er tekið fyrir hestana

Senda grein Senda grein  |  Prenta grein (nýr gluggi opnast) Prenta grein  |   Deila