Landbúnağarsıning | 19. ágúst 2007 Á fimmta þúsund gestir komu á SveitaSælu 2007!Nú er lokið SveitaSælu 2007 - Landbúnaðarsýningu & Bændahátíð á Sauðárkróki. Gríðargóð aðsókn var að sýningunni, en alls komu yfir fjögur þúsund manns, sem er meira en tvöföldun frá því í fyrra. Mál manna er að vel hafi til tekist, bæði gestir og fyrirtækin sem tóku þátt voru almennt mjög ánægð og stemning góð alla sýningardagana. Sýningarstjórn þakkar gestum komuna, starfsfólki vel unnin störf og fyrirtækjum sem kynntu sína starfsemi, auk þeirra fjölmörgu sem lögðu hönd á plóginn; allir lögðust á eitt við að gera Landbúnaðarsýninguna 2007 jafn vel heppnaða og raunin varð. Takk fyrir okkur og vonandi sjáumst við öll að ári liðnu! |