Landbúnağarsıning | 19. ágúst 2007 Hálfskýjað, hægviðri og hlýindiNú á síðasta degi Landbúnaðarsýningar 2007 er kyrrt og milt veður í Skagafirði, 14 stiga hiti kl. 10, og allt útlit fyrir fallegan sunnudag. Sýningin opnar kl. 11 og er opin til kl. 17. Á dagskrá er kynning á krökkum og kálfum frá Kálfasýningu, sem og kynning og lýsing á dómum á þremur efstu hrútum frá í gær. Hátæknifjósið í Birkihlíð er opið frá kl. 14 - 17, en þar var mikið fjölmenni í gær. Matarkistan Skagafjörður, Kjötafurðastöð KS og fleiri verða með girnilegt smakk, kynnt verður hvaða hani og hæna urðu hlutskörpust í fegurðarsamkeppni sýningargesta og ýmislegt fleira verður á boðstólum. Nú fer hver að verða síðastur að skella sér á Landbúnaðarsýningu 2007! |