Það varður fjölbreytt úrval af mögnuðum atriðum sem mynda dagskrá stórsýningarinnar Tekið til kostanna í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkóki, en fyrri sýningin fer fram föstudagskvöldið 20.apríl.
Margir þekkja sögur af Hesta-Bjarna en sá merki maður hefur klárlega verið langt á undan sinni samtíð. Hinir kunnu knapar og reiðkennarar Anton Páll og Mette Mannseth munu á einstakan hátt bregða ljósi á þá skemmtilegu staðreynd að margt af þeim aðferðum sem verið er að kenna víða um heim í dag hafði Hesta-Bjarni nýtt sér á sínum tíma við tamningar og þjálfun hrossa. Gaman verður að sjá hvernig Tona tekst til þegar hann begður á leik sem Hesta-Bjarni.
Meðal landsþekktra stóðhesta sem koma fram á sýningunni má nefna Glotta frá Sveinatungu, Glúm frá Stóra-Ási, Tind frá Varmalæk, Tígul frá Gýgjarhóli, Glym frá Árgerði, Blæ frá Torfunesi, Kraft frá Bringu og Geisla frá Sælukoti.
Þá má búast við hörku skeiðkeppni en 100.000 kr aukaverðlaun verða veitt þeim knapa sem nær að slá Hallarmetið í "Fluguskeiði". Líklegt er að Þórarinn Eymundsson á Ester frá Hólum gefi ekkert eftir í þeim slag!
Af öðurum spennandi dagskráliðum má benda á Húnversku dívurnar, sögusýningu, einvígi Riddaranna og Rammanns ásamt fjölda úrvals hrossa sem fram koma í hinum ýmsu atriðum.
Á laugardagskvöldið mun Geir H. Haarde, forsætisráðherra vera gestur sýningarinnar og ávarpa samkomuna.
Miðasala er í fullum gangi en forsala miða er hjá Shellsport 453-6666
Af öðrum viðburðum á hestadögunum má nefna Theodórsþing, Reiðkennslusýningu Hólaskóla, Vorsýningu Kynbótahrossa, Stærsta hesthús landsins til sýnis og opinn dag á hrossaræktarbúum.
Sjá dagskránna á www.digitalhorse.is