|
Stóðhestarnir okkar
Við höfum ekki verið mikið í því að halda kúlunum í hestfolöldum. Síðasti stóðhestur í okkar
eigu var líklega Prins frá Syðra-Skörðugili. Síðan gerðist það 2004 að Elvar sýndi hryssuna
Láru frá Syðra-Skörðugili í kynbótadóm fyrir pabba sinn. Lára fór í feikna dóm og hlaut 1.verðlaun.
Fór ég þá í smá samningarviðræður við gamla og fengum við að launum að halda hryssunni undir
stóðhest að eigin vali. Við völdum að fara með hana undir Hróð frá Refsstöðum. Lára kastaði
svo sumarið 2005 rauðnösóttum hesti og var ákveðið að halda honum gröðum. Síðan leiddi eitt
af öðru og nú eigum við alls þrjá stóðhesta á mismunandi aldri. Ef þú á annað borð átt
einn stóðhest er jafnvel betra að eiga nokkra, auðveldar að geyma þá á veturnar.
Þetta eru allt frambærilegir folar og bindum við miklar vonir við þá.

IS2005157517 Laufi frá Syðra-Skörðugili rauður,nösóttur.
Hæsti dómur/Seinni héraðssýning Skagafjarðar 2010. Sköpulag: 8,13 Hæfileikar 8,00 Aðaleinkunn: 8,05
M: Lára frá Syðra-Skörðugili
Hæsti dómur/Héraðssýning í Skagafirði 2004. Sköpulag: 7,96 Hæfileikar: 8,60 Aðaleinkunn: 8,35
F: Hróður frá Refsstöðum
Hæsti dómur/Landsmót Víðidal 2000. Sköpulag: 7,94 Hæfileikar: 8,69 Aðaleinkunn: 8,39

IS2006157500 Kóngurinn frá Syðra-Skörðugili, gráskjóttur (fæddur jarpskjóttur)
Hæsti dómur/Héraðssýning Skagafirði 2010. Sköpulag: 7,96
M: Nóta frá Syðra-Skörðugili
Hæsti dómur/Síðsumarssýning Vindheimamelum 2001. Sköpulag: 7,70 Hæfileikar: 8,02 Aðaleinkunn: 7,89
F: Klettur frá Hvammi
Hæsti dómur/Stóðhestasýning Gaddstaðaflötum 2005. Sköpulag: 8,43 Hæfileikar: 8,54 Aðaleinkunn: 8,49

IS2009157514 Fannar frá Syðra-Skörðugili
M: Aldís frá Syðra-Skörðugili
Hæsti dómur/Héraðssýning Vindheimamelum 1998. Sköpulag: 7,45 Hæfileikar: 7,84 Aðaleinkunn: 7,65
F: Krummi frá Blesastöðum 1A
Hæsti dómur/Landsmót Hellu 2008. Sköpulag: 8,13 Hæfileikar: 8,80 Aðaleinkunn: 8,53

IS2009157500 Naskur frá Syðra-Skörðugili, grár (fæddur jarpur)
M: Nóta frá Syðra-Skörðugili
Hæsti dómur/Síðsumarsýning Vindheimamelum 2001. Sköpulag: 7,70 Hæfileikar 8,02 Aðaleinkunn 7,89
F: Huginn frá Haga 1
Hæsti dómur/Víðidalur seinni sýning 200. Sköpulag: 7,84 Hæfileikar: 9,05 Aðaleinkunn 8,57
|