Hrútasýning á Sveitasælu 2008
Strangar reglur gilda um hrútasýningar í Skagafirði vegna smitvarna gagnvart sauðfjársjúkdómum. Verða því aðeins á sýningunni veturgamlir hrútar frá bæjum í Skagafirði vestan Héraðsvatna. Hrútasýningin í ár verður aðeins með breyttu sniði frá því sem verið hefur á fyrri Landbúnaðarsýningum í Skagafirði. Valdir verða átta hrútar úr hópi hæst dæmdu lambhrúta Skagafjarðar haustið 2007. Hrútarnir verða allir fordæmdir fyrir sýninguna. Á sýningunni gefst gestum kostur á að þukla a hrútana og bera saman ásamt því að reyna að finna út hvaða hrútur sé hæst dæmdur. Dregið verður úr réttum svörum. Sauðfjárræktarráðunautur Skagafjarðar Steinunn Anna Halldórsdóttir kveður svo upp dóminn. Aðrar skemmtilegar uppákomur verða einnig í kringum hrútana.
Dómstigi fyrir mat á lifandi fé
Skilgreiningar á hámarkseinkunn fyrir öll dómsatriði
Haus
Þegar þessi eiginleiki er metinn er eingöngu horft til galla sem ástæða er til að lækka gripinn fyrir. Ekki er gefið hærra en 8,0 þannig að þessi eiginleiki hefur í raun lækkað vægi í heildarstigum gripsins.
Háls og herðar
Fádæma góð gerð. Stuttur og sver, ákaflega vel bundinn háls. Herðar feikilega breiðar, ávalar og fádæma vel holdfylltar.
Bringa og útlögur
Fádæma góð gerð. Brjóstkassi sívalur með fádæma útlögur og bringa feikilega breið og löng.
Bak
Fádæma góð bakhold. Þykkt bakvöðva í allra efstu mörkum, lítil fituþykkt, lögun bakvöðva 5 skv. Mynd í ómsjá. Átak frábært og bak breitt.
Malir
Fádæma góð malahold. Feikilega breiðar, langar malir með kúptum mjög þykkum vöðva.
Læri
Einstök lærahold. Ótrúlega mikil vöðvafylling í lærum, bólgnir vöðvar sem bunga allstaðar utan- og innanlæris. Öruggt að lærafylling mætir kröfum um E-flokk í kjötmati.
Ull
Einstakir ullareiginleikar og feikilegt ullarmagn. Einstaklega mikil ull, hreinhvít, hrokkin en um leið silkimjúk ull með mikinn gljáa.
Fætur
Hér er beitt sömu aðferð og við stigun fyrir haus. Ekki er stigað hærra en 8,0 fyrir þennan eiginleika og þá einkunn fá öll lömb sem eru í lagi. 7,5 er gallað og 7,0 er orðin hrein falleinkunn.
Samræmi
Þessi eiginleiki er samsafn nokkurra atriða sem eðlilegt er að horfa til þegar verið er að meta væntanleg ásetningslömb, en eru atriði sem koma ekki beint í mat á öðrum eiginleikum. Gefin er einkunnin 8,0 fyrir það sem telst vera vel ásættanlegt. Hærri einkunnir eru notaðar fyrir áberandi kosti, bollöng, kviðlétt lömb sem hafa gott samræmi í byggingu

Jón Hjálmar Ingimarsson og aðstoðarmaður hans Leó Einarsson, 5 ára hlutu áhorfendabikarinn í kálfakeppninni.
Landbúnaðarsýning | 20. ágúst 2008 Landbúnaðarsýning & bændahátíðBestu þakkir til allra sem heimsóttu okkur á Landbúnaðarsýninguna SveitaSælu á Sauðárkróki helgina 15.-17. ágúst.
Einnig þökkum við öllum þeim fjölmörgu aðilum sem komu að undirbúningi og framkvæmd sýningarinnar. Sérstakar þakkir fá styrktaraðilar sýningarinnar. Sjáumst að ári liðnu.
Stjórn SveitaSælu 2008

Ágústkvöld í Skagafirði
Landbúnaðarsýning | 12. ágúst 2008 Landbúnaðarsýning & bændahátíðKomin er inn nákvæm dagskrá fyrir sýningardagana og þau atriði sem verða í gangi þessa dagana.
Ný og glæsileg kappreiðabrautÁ Sauðárkróki er staðið í stórframkvæmdum á félagssvæði Léttfeta. Þar er verið að bæta við einni glæsilegustu kappreiðabraut landsins og er áformað að hún verði vígð á Landbúnaðarsýningunni sem haldin verður í og við reiðhöllina Svaðastaði á Sauðárkróki daganna 15.-17. ágúst.

Hanar frá Tjörn á Vatnsnesi
Landbúnaðarsýning & bændahátíðLandnámshænsnastofninn á Tjörn verður 30 ára gamall nú seinnipartinn í ágúst.
Landbúnaðarsýning & bændahátíðNú hefur verið staðfest að Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Einar K. Guðfinnsson mun flytja opnunarávarp landbúnaðarsýningarinnar á Sauðárkróki í sumar. Opnunardagskrá sýningarinnar mun hefjast kl 18.00 föstudaginn 15. ágúst í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki.
Landbúnaðarsýning & bændahátíðNú er allt að smella saman fyrir Landbúnaðarsýninguna & bændahátíðina sem verður 15.-17. ágúst nk. í og við reiðhöllina Svaðastaði. Eitt er víst að nóg verður um að vera fyrir stóra sem smáa á sýningunni í ár og er mikið lagt upp úr því að gera sýninguna þannig úr garði gerða að öll fjölskyldan geti átt skemmtilega helgi saman.
Landbúnaðarsýning & bændahátíðSýningarstjórar landbúnaðarsýningarinnar þau Eyþór Jónasson og Rósa María Vésteinsdóttir eru þessa dagana í viðræðum við sýnendur. Allir þeir sem áhuga hafa á að sýna vörur sínar eða selja á sveitamarkaðnum endilega farið inn á heimasíðuna og skoðið hvað við höfum upp á að bjóða. Allir eru hjartanlega velkomnir að vera með, þeir sem hafa áhuga á að sýna geta haft samband við okkur, netfangið er landbunadarsyning@bondi.is eða hringt í okkur. Rósa María Vésteinsd. gsm 861 3460 og Eyþór Jónasson gsm 848 2725.
Landbúnaðarsýning | 24. janúar 2008 Landbúnaðarsýningin & Bændahátíðin SveitSæla verður haldin í Reiðhöllinni Svaðastöðum í fjórða sinn í sumar. Síðasta hátíð sló öll met þegar á fimmta þúsund gestir allsstaðar af á landinu sóttu sýninguna heim.
Landbúnaðarsýning | 27. ágúst 2007 Nú eru komnar hér inn á síðu Landbúnaðarsýningarinnar upplýsingar um sigurvegara Umhverfisverðlauna Skagafjarðar 2007, en þau voru afhent á sýningunni laugardaginn 18. ágúst sl.
Landbúnaðarsýning | 20. ágúst 2007 Nú eru komnar hér inn á síðuna upplýsingar um sigursælustu keppendur í kálfa- og hrútasýningum Landbúnaðarsýningar 2007. Þeir sem luma á myndum af keppendum með dýrin sín mega gjarna senda þær á landbunadarsyning@bondi.is
|