Hrossaræktarsamband SkagafjarðarEnglish languageRSS

Kálfasýning 2008Kálfasýning 2007Kálfasýning 2008Kálfasýning 2008Kálfasýning 2008

 

Kálfasýning 2008Kálfasýning 2008Kálfasýning 2008Kálfasýning 2008Kálfasýning 2008


Þátttakendur í kálfasýningunni á SveitaSælu 2008:

 

1.   Kata Líf  555 frá Keldudal, Hegranesi

Fædd 05.05.08,  kolótt, huppótt

F: Röskur 05039                    M: Kata 339

Sýnandi: Sunna Þórarinsdóttir, 10 ára

 

2.   Tía 320 frá Sólheimun, Sæmundarhlíð

Fædd 18.06.08, kolótt, stjörnótt

F: Díi 255                   M: Pía 273

Sýnandi: Sævar Óli Valdimarsson, 11 ára

 

3.   Gríma 283 frá Tunguhálsi 2, Tungusveit

Fædd 25.04.2008, svarhúfótt

F:  Baugur  05026                  M: Viska 194 

Sýnandi: Hrafnhildur Ósk Halldórsdóttir, 10 ára

 

4.   Rakel 425 frá Flugumýri, Blönduhlíð

Fædd 30.05.08, svört, sokkótt, huppótt

F: Gangandi  99035               M: Flekka 218

Sýnandi: Rakel Eir Ingimarsdóttir, 9 ára

Aðstoðarm: Inga Einarsdóttir, 9 ára

 

5.   Sóley 321 frá Sólheimum, Sæmundarhlíð

Fædd 15.07.08, rauð, stjörnótt

F: Gimli 05042                       M: Lóa 224

Sýnandi: Berglind Vala Valdimarsdóttir, 7 ára

Aðstoðarm: Herdís Lilja Valdimarsdóttir, 3 ára

 

6.   Blóma 433 frá Flugumýri, Blönduhlíð

Fædd 01.08.08, rauðhryggjótt

F: Þversteinn  97032              M: Þríund 320

Sýnandi: Jón Hjálmar Ingimarsson,  5 ára

Aðstoðarm: Leó Einarsson,  5 ára

 

7.   Jóhanna 406 frá Garði, Hegranesi

Fædd 17.05.08 ljósrauð, hryggjótt

F: Þrasi  88052                       M: Lokka 174

Sýnendur: Magnús Logi Sigurbjörnsson, 5 ára

og Sigurjón Heiðar Sigurbjörnsson, 4 ára

 

 

Úrslit í kálfasýningu á SveitaSælu

 

1.     sæti - Gríma 283 frá Tunguhálsi 2, Tungusveit

Fædd 25.04.2008, svarhúfótt

F:  Baugur  05026                  M: Viska 194 

Sýnandi: Hrafnhildur Ósk Halldórsdóttir, 10 ára

 

 

2.     sæti - Kata Líf  555 frá Keldudal, Hegranesi

Fædd 05.05.08,  kolótt, huppótt

F: Röskur 05039                    M: Kata 339

Sýnandi: Sunna Þórarinsdóttir, 10 ára

 

3.     sæti - Jóhanna 406 frá Garði, Hegranesi

Fædd 17.05.08 ljósrauð, hryggjótt

F: Þrasi  88052                       M: Lokka 174

Sýnendur: Magnús Logi Sigurbjörnsson, 5 ára

 

 

Sigurvegari í kosningu áhorfenda:

 

Blóma 433 frá Flugumýri, Blönduhlíð

Fædd 01.08.08, rauðhryggjótt

F: Þversteinn  97032              M: Þríund 320

Sýnandi: Jón Hjálmar Ingimarsson,  5 ára

Aðstoðarm: Leó Einarsson,  5 ára

 

Kálfasýning - reglur

Sýningin fer þannig fram að sýnendur leiða gripi sína fyrir dómnefnd sem gefur einkunn fyrir tiltekin atriði í sýningunni.  Þau atriði sem liggja þar til grundvallar eru útlit kálfsins, sýnandinn og hvernig til tekst með sýninguna.

 

  1. Útlit ? 40% (hárafar, fóðrun, snyrting og hreinleiki kálfsins).
  2. Sýnandi ? 10% (framkoma og snyrtimennska).
  3. Sýning gripsins ? 50% (hlýðir taum, stendur kyrr, rólegur, gripurinn sé vakandi og komi vel fyrir).

 

Stefnt er að því að sýningarflokkar verði tveir:

  1. Kálfar þar sem sýnendur eru börn yngri en 10 ára.
  2. Kálfar þar sem sýnendur eru börn og unglingar 10 ára og eldri.

 

Eftir að dómnefnd hefur lokið störfum fer fram verðlaunaafhending.  Allir sýnendur munu fá viðurkenningu fyrir þátttöku auk þess sem verðlaun verða veitt fyrir efstu sæti í hvorum flokki. Dómar og verðlaunaafhending verður á laugardeginum en á sunnudeginum verða sigurvegarar kynntir og krökkum úr röðum áhorfenda gefinn kostur á að prófa að teyma kálfa. Tímasetningar má sjá í dagskránni hér í sýningarskránni.

 

Umsjónarmenn kálfasýningarinnar eru Valdimar Sigmarsson og Eiríkur Loftsson ráðunautur.

Jón Hjálmar Ingimarsson og aðstoðarmaður hans Leó Einarsson, 5 ára hlutu áhorfendabikarinn í kálfakeppninni.
Jón Hjálmar Ingimarsson og aðstoðarmaður hans Leó Einarsson, 5 ára hlutu áhorfendabikarinn í kálfakeppninni.

SveitaSæla 2008

Landbúnaðarsýning & bændahátíð

Bestu þakkir til allra sem heimsóttu okkur á Landbúnaðarsýninguna SveitaSælu á Sauðárkróki helgina 15.-17. ágúst. Einnig þökkum við öllum þeim fjölmörgu aðilum sem komu að undirbúningi og framkvæmd sýningarinnar. Sérstakar þakkir fá styrktaraðilar sýningarinnar. Sjáumst að ári liðnu. Stjórn SveitaSælu 2008
:: meira
Ágústkvöld í Skagafirði
Ágústkvöld í Skagafirði

SveitaSæla 2008

Landbúnaðarsýning & bændahátíð

Komin er inn nákvæm dagskrá fyrir sýningardagana og þau atriði sem verða í gangi þessa dagana.
:: meira

SveitaSæla 2008

Ný og glæsileg kappreiðabraut

Á Sauðárkróki er staðið í stórframkvæmdum á félagssvæði Léttfeta. Þar er verið að bæta við einni glæsilegustu kappreiðabraut landsins og er áformað að hún verði vígð á Landbúnaðarsýningunni sem haldin verður í og við reiðhöllina Svaðastaði á Sauðárkróki daganna 15.-17. ágúst.
:: meira
Hanar frá Tjörn á Vatnsnesi
Hanar frá Tjörn á Vatnsnesi

SveitaSæla 2008

Landbúnaðarsýning & bændahátíð

Landnámshænsnastofninn á Tjörn verður 30 ára gamall nú seinnipartinn í ágúst.
:: meira

SveitaSæla 2008

Landbúnaðarsýning & bændahátíð

Nú hefur verið staðfest að Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Einar K. Guðfinnsson mun flytja opnunarávarp landbúnaðarsýningarinnar á Sauðárkróki í sumar. Opnunardagskrá sýningarinnar mun hefjast kl 18.00 föstudaginn 15. ágúst í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki.
:: meira

SveitaSæla 2008

Landbúnaðarsýning & bændahátíð

Nú er allt að smella saman fyrir Landbúnaðarsýninguna & bændahátíðina sem verður 15.-17. ágúst nk. í og við reiðhöllina Svaðastaði. Eitt er víst að nóg verður um að vera fyrir stóra sem smáa á sýningunni í ár og er mikið lagt upp úr því að gera sýninguna þannig úr garði gerða að öll fjölskyldan geti átt skemmtilega helgi saman.
:: meira

SveitaSæla2008

Landbúnaðarsýning & bændahátíð

Sýningarstjórar landbúnaðarsýningarinnar þau Eyþór Jónasson og Rósa María Vésteinsdóttir eru þessa dagana í viðræðum við sýnendur. Allir þeir sem áhuga hafa á að sýna vörur sínar eða selja á sveitamarkaðnum endilega farið inn á heimasíðuna og skoðið hvað við höfum upp á að bjóða. Allir eru hjartanlega velkomnir að vera með, þeir sem hafa áhuga á að sýna geta haft samband við okkur, netfangið er  landbunadarsyning@bondi.is eða hringt í okkur. Rósa María Vésteinsd. gsm 861 3460 og Eyþór Jónasson gsm 848 2725.

 

:: meira

SveitaSæla 2008

Landbúnaðarsýningin & Bændahátíðin SveitSæla verður haldin í Reiðhöllinni Svaðastöðum í fjórða sinn í sumar. Síðasta hátíð sló öll met þegar á fimmta þúsund gestir allsstaðar af á landinu sóttu sýninguna heim.
:: meira

Umhverfisverðlaun Skagafjarðar

Nú eru komnar hér inn á síðu Landbúnaðarsýningarinnar upplýsingar um sigurvegara Umhverfisverðlauna Skagafjarðar 2007, en þau voru afhent á sýningunni laugardaginn 18. ágúst sl.
:: meira

Sigurvegarar kálfa- og hrútasýninga

Nú eru komnar hér inn á síðuna upplýsingar um sigursælustu keppendur í kálfa- og hrútasýningum Landbúnaðarsýningar 2007. Þeir sem luma á myndum af keppendum með dýrin sín mega gjarna senda þær á landbunadarsyning@bondi.is
:: meira