


Húsdýragarður
Á landbúnaðarsýningunni verður húsdýragarður í samstarfi við búgreinasamböndin í Skagafirði þar verður hægt verður að sjá m.a. geitur, hestar, kindur, kýr, kisur og loðdýr svo eitthvað sé nefnt.
Smalahundafélagið mætir á svæðið og verður með hvolpa sem verða til sýnis.
Einnig verður boðið upp á fræðsluerindi í tengslum við íslenskan landbúnað. Nánari upplýsingar um erindin verður hægt að finna í dagskránni þegar hún verður endanlega tilbúin.

Jón Hjálmar Ingimarsson og aðstoðarmaður hans Leó Einarsson, 5 ára hlutu áhorfendabikarinn í kálfakeppninni.
Landbúnaðarsýning | 20. ágúst 2008 Landbúnaðarsýning & bændahátíðBestu þakkir til allra sem heimsóttu okkur á Landbúnaðarsýninguna SveitaSælu á Sauðárkróki helgina 15.-17. ágúst.
Einnig þökkum við öllum þeim fjölmörgu aðilum sem komu að undirbúningi og framkvæmd sýningarinnar. Sérstakar þakkir fá styrktaraðilar sýningarinnar. Sjáumst að ári liðnu.
Stjórn SveitaSælu 2008

Ágústkvöld í Skagafirði
Landbúnaðarsýning | 12. ágúst 2008 Landbúnaðarsýning & bændahátíðKomin er inn nákvæm dagskrá fyrir sýningardagana og þau atriði sem verða í gangi þessa dagana.
Ný og glæsileg kappreiðabrautÁ Sauðárkróki er staðið í stórframkvæmdum á félagssvæði Léttfeta. Þar er verið að bæta við einni glæsilegustu kappreiðabraut landsins og er áformað að hún verði vígð á Landbúnaðarsýningunni sem haldin verður í og við reiðhöllina Svaðastaði á Sauðárkróki daganna 15.-17. ágúst.

Hanar frá Tjörn á Vatnsnesi
Landbúnaðarsýning & bændahátíðLandnámshænsnastofninn á Tjörn verður 30 ára gamall nú seinnipartinn í ágúst.
Landbúnaðarsýning & bændahátíðNú hefur verið staðfest að Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Einar K. Guðfinnsson mun flytja opnunarávarp landbúnaðarsýningarinnar á Sauðárkróki í sumar. Opnunardagskrá sýningarinnar mun hefjast kl 18.00 föstudaginn 15. ágúst í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki.
Landbúnaðarsýning & bændahátíðNú er allt að smella saman fyrir Landbúnaðarsýninguna & bændahátíðina sem verður 15.-17. ágúst nk. í og við reiðhöllina Svaðastaði. Eitt er víst að nóg verður um að vera fyrir stóra sem smáa á sýningunni í ár og er mikið lagt upp úr því að gera sýninguna þannig úr garði gerða að öll fjölskyldan geti átt skemmtilega helgi saman.
Landbúnaðarsýning & bændahátíðSýningarstjórar landbúnaðarsýningarinnar þau Eyþór Jónasson og Rósa María Vésteinsdóttir eru þessa dagana í viðræðum við sýnendur. Allir þeir sem áhuga hafa á að sýna vörur sínar eða selja á sveitamarkaðnum endilega farið inn á heimasíðuna og skoðið hvað við höfum upp á að bjóða. Allir eru hjartanlega velkomnir að vera með, þeir sem hafa áhuga á að sýna geta haft samband við okkur, netfangið er landbunadarsyning@bondi.is eða hringt í okkur. Rósa María Vésteinsd. gsm 861 3460 og Eyþór Jónasson gsm 848 2725.
Landbúnaðarsýning | 24. janúar 2008 Landbúnaðarsýningin & Bændahátíðin SveitSæla verður haldin í Reiðhöllinni Svaðastöðum í fjórða sinn í sumar. Síðasta hátíð sló öll met þegar á fimmta þúsund gestir allsstaðar af á landinu sóttu sýninguna heim.
Landbúnaðarsýning | 27. ágúst 2007 Nú eru komnar hér inn á síðu Landbúnaðarsýningarinnar upplýsingar um sigurvegara Umhverfisverðlauna Skagafjarðar 2007, en þau voru afhent á sýningunni laugardaginn 18. ágúst sl.
Landbúnaðarsýning | 20. ágúst 2007 Nú eru komnar hér inn á síðuna upplýsingar um sigursælustu keppendur í kálfa- og hrútasýningum Landbúnaðarsýningar 2007. Þeir sem luma á myndum af keppendum með dýrin sín mega gjarna senda þær á landbunadarsyning@bondi.is
|