Íslensk hrossakynning
Tekiš til kostanna

Filmurenningur

  24. - 27. apríl 2008
   Fjölbreyttar og vandaðar hestasýningar
sem enginn hestamaður ætti að láta fram hjá sér fara

SUMARIÐ BYRJAR Í SKAGAFIRÐI

 

STÓRSÝNING Á FÖSTUDAGSKVÖLD - Laus sæti

STÓRSÝNING Á LAUGARDAGSKVÖLD - Uppselt

ath. samskonar sýning bæði kvöldin.

Tryggðu þér miða í tíma
Forsala aðgöngumiða á kvöldsýningarnar er hafin á eftirtöldum stöðum
Ath. aðgangur er ókeypis á dagsýningarnar
- N1, Ártorgi 4, Sauðárkróki,
- Fákasport hestavöruverslun, Árstíg 6, Akureyri - ATH.TAKA EKKI KORT
- Ástund, Austurveri, Háaleitisbraut 68, Reykjavík

DAGSKRÁ

REIÐHÖLLINN SVAÐASTAÐIR, SAUÐÁRKRÓKI:


Fimmtudagur 24. apríl. SUMARDAGURINN FYRSTI

  • Kl. 13 Leiðrétting reiðhestsins I.  hluti.
    Kennarar og nemendur Háskólans á Hólum taka við hestum sem þarfnast leiðréttingar og sýna áhorfendum hvaða aðferðum má beita til að takast á við mismunandi vandamál hverju sinni. Aðgangur ókeypis

Föstudagur 25. apríl

  • Kl. 8-15 Dómar kynbótahrossa
  • Kl. 20.30 Stórsýning Tekið til kostanna.  FORSALA AÐGÖNGUMIÐA, sjá ofar
  • Bjórkvöld og harmonikkuspil í anddyri Reiðhallar að lokinni stórsýningu

Laugardagur 26. apríl

  • Kl.   8-10 Leiðrétting reiðhestsins II. hluti
  • Kl. 10-12 Yfirlitssýning kynbótahrossa
  • Kl. 13-15 Kennslusýning reiðkennarabrautar Hólaskóla
    Á sýningunni kynna nemendur og kennarar fagleg vinnubrög við tamningar og þjálfun. Aðgangur ókeypis
  • Kl. 15-17 Leiðrétting reiðhestsins III. hluti
  • Kl. 20:30 Stórsýning Tekið til kostanna. FORSALA AÐGÖNGUMIÐA, sjá ofar
  • Bjórkvöld og harmonikkuspil í anddyri Reiðhallar að lokinni stórsýningu

Sunnudagur 27. apríl

  • Kl. 13 Varmilækur I og Flugumýri bjóða gestum að líta í heimsókn

Stórsýningar á föstudags- og laugardagskvöld (sömu sýningaratriði verða bæði kvöldin)

Afkomendur skagfirskra stóðhesta

Sleðaferð og kvæðastemmur á Héraðsvötnum

Hvanneyringar leika listir sínar

Hólastúlkur skora á skagfirska smaladrengi

Húnvetnsku dívurnar

Ljósmóðurreið

Fluguskeið ? verður hallarmetið slegið?

Heimsmeistarinn Þórarinn Eymundsson mætir vel ríðandi

Frábærir gæðingar, glæsileg og vel æfð sýningaratriði

  

...fleira verður á boðstólum í Reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki:

  • Kaffihús að hætti Matarkistu Skagafjarðar
    Opið kl.  11.00- 16.00 fimmtudag, föstudag og laugardag

    - Á fimmtudag og föstudag verður Áskaffi verður með ilmandi kúrekakaffi og vestan Vatna meðlæti.

    - Á laugardag verður Kaffibaunin, kaffihús 9. bekkinga í Grunnskólanum austan Vatna í samstarfi við bakarí Sauðárkróks og kvenfélag Hólahrepps með úrvals kaffi, bakkelsi og súpu.

  • Handverksmarkaður
    Opið kl.  11.00- 16.00 fimmtudag og laugardag

  • Myndlistarsýning grunnskólanema í Skagafirði
    Opnar  kl. 12:00 á fimmtudaginn og stendur alla helgina

Nánari upplýsingar um Tekið til kostanna, veitir Arna Björg Bjarnadóttir,  tekidtilkostanna@bondi.is, s. 455 6345 / 896 2339
Upplýsingar um Skagafjörð: www.visitskagafjordur.is

358_5849a.jpg
MannfjöldiMenntamálaráðherra.jpg2004122309394194.jpg

Til baka


25. september 2008
Flottasta Laufskálaréttarhelgin til þessa - Sögulegur grínviðuburður í Skagafirði!
Hin víðfræga stóðrétt Laufskálarétt í Hjaltadal fer fram laugardaginn 27. sept. n.k. Fjöldi þeirra sem sækja réttina hefur aukist ár frá ári og í kringum hana skapast einstök stemning. Líkt og síðustu ár verður ýmislegt gert til að skemmta þeim sem sækja Skagafjörð heim þessa helgi ? en fullyrða má að dagskráin þessa ?Laufskálaréttarhelgi? sé sú glæsilegasta fram að þessu.
Meira

29. febrúar 2008
Að bæta reiðhestinn
Leiðréttingarvinna Hólaskóla á Tekið til kostanna
Reiðkennarar Hólaskóla ásamt nemendum reiðkennarabrautar standa fyrir kennslusýningu á stórsýningunni ?Tekið til kostanna? sem fram fer dagana 24.-26. apríl. Einn þáttur í sýningunni verður leiðréttingavinna þar sem unnið verður með hesta með mismunandi vandamál undir stjórn reiðkennara Hólaskóla.
Meira

10. janúar 2008
Undirbúningur Tekið til kostanna 2008 hafinn
Undirbúningur alþjóðlegra hestadaga, Tekið til kostanna, sem haldnir verða í Skagafirði dagana 24.-27. apríl er nú hafinn.
Meira