Uppfært 9.júlí 2010


Laufi frá Syðra-Skörðugili
9.júlí Hlekkur kominn í hólfið sitt. Hlekk var sleppt í hólfið með dömunum sínum sem eru um 17 talsins um helgina. Hann virtist vera mjög ánægður með frelsið og leist vel á drottningarnar:)

Aðeins sveittur eftir átökin:)

Aldís & Hlekkur voða skotin:::)
5.júlí 2010 Laufi frá Syðra-Skörðugili kominn í 1.verðlaun. Sköpulag: 8,13 Hæfileikar: 8,00 Aðaleinkunn: 8,05 - Dómur í heild

Laufi í dóm 2.júlí sl.
28.júní Var að uppfæra upplýsingar um ræktunarhryssurnar - kíkið hér.
26.júní Það hafa bæst í söluhópinn ný hross - kíkið hér.
22.júní Hóstapestin er í rénum og útreiðar komnar í nokkuð eðlilegt horf. Stefnt er með nokkrar hryssur í dóm á kynbótasýninguna "landsmótsvikuna" og verður spennandi að sjá hvernig það gengur. Einnig höfum við tekið á hús kippu af ótömdu sem ætlunin er að gera reiðfært áður en rekið verður á fjall. Í þessum hópi eru mörg efnileg tryppi m.a undan Hróð frá Refsstöðum, Óðni frá Hvítárholti, Nagla frá Þúfu, Hörgli frá Steðja, Farsæl frá Íbishóli og fleirri góðum gripum.
Ég stormaði í hryssuhólfið með myndavélina meðferðis og smellti nokkrum myndum af folöldunum. Hryssurnar eru allar kastaðar nema ein og það aðal hryssan, Nóta, hún á að koma með folald undan Glóðafeyki frá Halakoti og verður spennandi að sjá hvað kemur. Hryssurnar eru vel frískar og ekki hefur borið á veikindum í þeim enn:)

Glöð með hestfolald undan Kónginum frá Syðra-Skörðugili - var gefinn í brúðkaupsgjöf til góðra vina 19.júní sl.

Lára með hryssu undan Penna frá Glæsibæ :)

Hrönn með hryssu undan Laufa frá Syðra-Skörðugili
25.maí Hlekkur frá Lækjamóti verður í hólfi hjá okkur í sumar

Hlekkur er undan Álfi frá Selfossi og Von frá Stekkjarholti. Þau eru því sammæðra Hlekkur og Mön frá Lækjamóti. Við erum afar spennt fyrir þessum hesti. Von virðist vera gæðingamótir þar sem þrjú af afkvæmum hennar eru nú þegar með 1.verðlaun og Hlekkur alveg við mörkin. Hann var sýndur í fyrra þá 4.vetra og fékk 8,11 fyrir byggingu og 7,62 fyrir hæfileika (klárhestur) þar af 8 fyrir tölt, 8 fyrir vilja & geðslag og 8,5 fyrir fegurð í reið. Hlekkur er eins og Mön með mikinn fótaburð og fas einnig er hann afar geðgóður og með gott tölt. Þetta eru þau ræktunarmarkmið sem við m.a stefnum á. Gott tölt, auðtamið með góðan fótaburð:) Þeir sem hafa áhuga á að halda hryssum undir gripinn endilega hafið samband.
19.apríl Grunnskólamótið í Hestaíþróttum - Varmahlíðarskóli varði titilinn!


Guðmar Freyr, Ásdís Ósk, Ingunn Ingólfsd, Sigurður Bjarni, Rakel Eir.

Í gær fór fram síðasta mótið af þrem í Grunnskólamóti Norðurlands vestra. Mótið var haldið í Reiðhöllinni Svaðastöðum og var þátttaka alveg frábær. Viktoría og Ásdís tóku að sjálfsögðu þátt og gékk þeim báðum alveg prýðilega. Viktoría og Dreki enduðu í 7.sæti í tölti 4-7 bekkur og Ásdís og Mön í 1.sæti. Það voru mögnuð úrslitin í þeim flokki og krakkarnir heldur betur vel ríðandi, af þeim fimm hrossum sem voru í úrslitum voru 3 þeirra með 1.verðlaun. Rakel á Flugumýri keppti á hryssunni frá okkur henni Smáralind og stóð hún sig með mikilli prýði. Varmahlíðarskóli varði titilinn frá því í fyrra og stóðu krakkarnir sig frábærlega.
Hér má sjá úrslit mótsins.
10.apríl Fjölskyldan gerði góða ferð á Hvammstanga í gær. Þar fór fram síðasta mótið í Húnvetnsku liðakeppninni, keppt var í tölti. Elvar og Mön lentu í 4.sæti í 1.flokk. Ásdís og Höfðingji í 1.sæti 16ára og yngri og Fjóla og Lárus í 5.sæti í 2.flokki. Liðið okkar Víðidalur & Fitjárdalur endaði í 2.sæti. Þetta var hörkumót og hér má sjá heildarúrslitin. Ásdís kom heldur betur drekkhlaðin verðlaunum því ásamt því að vera efst í flokknum 16 ára og yngri fékk hún einnig svaka flotta styttu fyrir hæstu tölteinkunnina í þessum flokki og svo líka var hún stigahæsti unglingurinn í Liðakeppninni í heild, Elvar fékk 2.sæti sem stigahæsti knapinn í 1.flokki. Hér eru nokkrar myndir af heimasíðu Þyts www.thytur.123.is
ÁÓ 1.sæti 16 ára og yngri
Stígahæsti unglingurinn ÁÓ
EE 3.sæti
EE 2.sæti í stigakeppninni 1.flokki
Fjóla 5.sæti 2.flokki
8.april Lokakvöldið í KS deildinni fór fram í Reiðhöllinni í gærkvöld. Ekki gékk nú alveg allt upp hjá Elvari að þessu sinni en endaði í 10.sæti í smalanum og í 7.sæti í skeiði. Hrappur var í engu stuði í gær til að skeiða, lá ekki seinni sprettinn og fór þann fyrri á 5.40. Í stigasöfnuninni endaði Elvar jafn í 4-6 sæti ásamt Magga Magg og Mette. Bjarni Jónasson sigraði KS deildina að þessu sinni og er sko vel að sigrinum kominn - frábær árangur hjá honum. Hér er meira um úrslitin.
1.sæti Bjarni Jónasson 2.sæti Þórarinn Eymundsson 3.sæti Ólafur Magnússon
8.apríl Úrslit frá Kvennatölti Norðurlands hér neðar og eitt stykki mynd af kjellunni:)
5.apríl Páskarnir eru búnir að vera mikið líflegir á þessu heimili. Hér mættu fjölskyldur og fjölskyldumeðlimir alls 15 manns þegar mest var. Það var farið á skíði , hestbak, sleða, sexhjól og margt fleirra brallað ásamt því að hér var étið óeðlilega mörg kíló af sælgæti. Hér má finna nokkrar myndir frá páskagleðinni
5.apríl Á laugardaginn síðasta skelltu við mæðgur okkur á Kvennatölt norðurlands sem haldið var í fyrsta sinn í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Fjóla keppti í flokki minna vanar á hesti sínum Lárusi frá Syðra-Skörðugili og hreppti 2.sætið - nokkuð góður árangur miðað við margra ára keppnishlé. Ásdís Ósk keppti á Mön frá Lækjamóti í flokki meira vanar og enduðu þær í 3.sæti sem er frábær árangur hjá þeim skvísum:) Frábært framtak hjá Útflutningsþjónustu Eysteins Leifssonar og vonandi komið til að vera.

Hér koma úrslitin frá kvöldinu
2.flokkur minna vanar
1.Svala Guðmundsdóttir /Þyrill frá Hólkoti
2.Fjóla Viktorsdóttir/Lárus frá Syðra-Skörðugili
3.Rósa María Vésteinsdóttir/Kolbeinn frá Sauðárkróki
4.Álfhildur Leifsdóttir/Garri frá Hóli
5.Vigdís Gunnarsdóttir/Aþena frá Víðidalstungu II
1.Flokkur meira vanar
1.Heiðrún Ósk Eymundsdóttir/Spakur frá Dýrfinnustöðum
2.Oddný Lára Guðnadóttir/Blíða frá Enni
3.Ásdís Ósk Elvarsdóttir/Mön frá Lækjamóti
4.Sonja Líndal/Björk frá Lækjamóti
5.Hallfríður Óladóttir/Kolgerður frá Vestri-Leirárgörðum
3.apríl Við fjölskyldan skelltum okkur í Viðvíkursveitina á föstudaginn langa. Þar fór fram Vormót Viðvíkursveitar þar sem hver bær mætti með sitt lið. Þar var keppt í tölti, símareið og gæðingakeppni (þrígangi). Elvar var í liði Atlastaða með hryssu frá þeim Hvellu frá Syðri-Hofdölum. Ásdís Ósk var með frænda sínum Jónasi í liði Syðri-Hofdala með hest sem þær systur eiga, Dreka frá Syðra-Skörðugili. Fjóla var í liði Ásgeirsbrekku og keppti í tölti á Lárusi frá Syðra-Skörðugili. Komust allir í úrslit, Elvar var annar í tölti og Fjóla í 4.sæti. Ásdís hafnaði einnig í 4.sæti í gæðingakeppninni eftir nokkra góða skeiðspretti á honum Dreka sínum. Hér er myndir af mótinu sem Klara á Hofdölum tók.


30.mars Vinir okkar á Lækjamóti voru rosalega dugleg að taka myndir á sýningunni Ræktun 2010 um helgina. Þetta eru alveg frábærar myndir og ég fékk leyfi til að setja nokkrar hér inn. Fleirri myndir má sjá á heimasíðu þeirra www.laekjamot.is





28.mars Á miðvikudaginn síðasta tóku við mæðgurnar þátt í Skagfirsku mótaröðinni. Okkur Viktoríu gékk bara ágætlega en komust ekki í úrslit. ÁÓ hins vegar vann fjórgang 16 ára og yngri á nýjum hesti honum Höfðingja frá Dalsgarði sem er í eigu stórvinar okkar Munda í Dalsgarði. Frábær árangur hjá þeim á hans fyrsta móti.
Í gær var svo stórsýning í Reiðhöllinni Svaðastöðum, Ræktun 2010. Elvar var þar með fjórar hryssur sem hann er með í þjálfun og gékk prýðisvel með þær allar. Litla fjölskyldan á Syðra-Skörðugili var síðan með eitt atriði þar sem við hjónin mættum með þá bræður Lárusyni, Lárus og Laufa. Síðan fékk frumburðurinn að skottast með á henni Mön frá Lækjamóti. Þetta var virkilega skemmtileg sýning í heildina og var vel mætt á pallana á Svaðastöðum. Skemmtilegt kvöld. Hér eru nokkrar myndir sem stórvinkona mín Klara Hofdölum tók í gærkvöld:)



22.mars Það var mikið um að vera um helgina líkt og alltaf:) Á laugardag vorum við á Akureyri þar sem Elvar var með Mön á Stjörnutöltinu. Það gékk ekki sem skildi, klikkaði ein hraðabreytingin og komst hún því ekki í úrslit að þessu sinni, endaði í 7-8 sæti. Einnig var hann með Laufa okkar í stóðhestakeppninni. Þetta var fyrsta ferð Laufa að heiman og það lagðist ekkert sérstaklega vel í hann, hann stífnaði allur á ísnum og var hræddur með meiru:( Gengur bara betur næst.
Á sunnudaginn skelltum við okkur á Blönduós þar sem dæturnar voru að keppa. Að þessu sinni var keppt í smala í Grunnskólamóti Norðurlands vestra 2.mót af 3. Það gékk mjög vel hjá skvísunum, Viktoría og Hrappur höfnuðu í 7.sæti og Ásdís og Glódís í 1.sæti. Að loknu mótinu er Varmahlíðarskóli enn eftstur með 63 stig. Sjá nánar úrslitin af mótinu hér.
Viktoría & Hrappur
18.mars Í gærkvöld var þriðja mótið í KS deildinni. Keppt var í fimmgangi að þessu sinni. Elvar mætti með hana Smáralind og gékk ekki allt upp í forkeppninni. Hryssan var ekki dottin alveg í skeiðgírinn en hafði það af inn í B-úrslit. Þeir voru jafnir í 8-9.sæti Elvar og Maggi Magg með Vafa frá Ysta-Mói. Smáralind tók heldur á því í skeiðinu í B-úrslitunum og komst þannig upp í A-úrslitin. Það var nú aðeins farið að síga í skvísuna undir lokin og þreytan farin að segja til sín. Eftir 8 skeiðspretti það kvöldið hafnaði Smáralind og Elvar í 4.sæti. Glæsilegt hjá þeim. Bjarni Jónasson kom sá og sigraði á þeirri frábæru hryssu Djásn frá Hnjúki og voru þau vel að sigrinum komin. Nánar um úrslit mótsins er að finna á www.svadastadir.is
Vinningshafar kvöldsins
Smáralind, ÁÓ & VEE á góðri stundu:)
13.mars Fjölskyldan stormaði á Hvammstanga í gærkvöld til að taka þátt í Húnvetnsku liðakeppninni. Við erum meðlimir í Liði 3 (besta liðinu að sjálfsögðu :) Það gékk heldur vel hjá heimilisfólkinu. Ásdís keppti í tölti 16 ára og yngri á Mön frá Lækjamóti og hafnaði í 1.sæti. Keppt var í fimmgangi fullorðinna. Elvar endaði í 3.sæti í 1.flokki á Smáralind. Í 2.flokki keppti vinnukonan okkar hún Katharina á honum Brjáni frá Keldudal og endaði í 6.sæti. Mótið var mjög skemmtilegt og myndast alltaf frábær stemming í liðunum og allir eru að hvetja sína menn:) Lið 3 er nú í 2.sæti í liðakeppninni og munar mjög mjóu á 1 og 2 sæti. Því verður spennandi að fylgjast með lokamótinu þar sem keppt verður í tölti. Heildarúrslit af mótinu eru á heimasíðu Þyts.

12.mars Komin ný videó. Miskunn frá Syðra-Skörðugili, Glódís frá Hafsteinsstöðum
11.mars Aðalfundur félags sauðfjárbænda í Skagafirði var haldinn sl.þriðjudag. Þar voru veitt verðlaun fyrir kynbótahrúta ársins 2009. Veitt eru verðlaun fyrir besta lambhrútinn, besta veturgamla hrútinn og verðun fyrir kynbótahrút ársins. Að þessu sinni voru við með hæst dæmda veturgamla hrútinn sem er hann Blær 09-070 frá Syðra-Skörðugili, Hann hlaut í einkunn 89 stig sem er Skagafjarðarmet:) Blær er undan hrút frá okkur sem heitir Gustur en sá er sonur Hvells. Blær hlaut í haust 37 í vöðva, 2.2 í fitu og 4.5 fyrir lögun, 9 fyrir háls og herðar, 18,5 fyrir læri og 9 fyrir bak. Við áttum hrút í öðru sæti bæði í flokki veturgamla jafnt sem kynbótahrúta.
11.mars Nú er undirbúningur á fullu fyrir Húnvetnsku liðakeppnina sem haldin verður á Hvammstanga annað kvöld sjá ráslista hér
7.mars Fyrsta Grunnskólamótið í hestaíþróttum fór fram í nýju reiðhöll Þytsfélaga Þytsheimum á sunnudaginn. Þetta var glaðlegt og skemmtilegt mót og gékk vel hjá Varmahlíðarskóla og aðdáunarvert hve vel var mætt af Varmhlíðingum:) Viktoría og Ásdís kepptu að þessu sinni báðar í sama flokki sem er þrígangur 4-7 bekkur. Það gékk rosalega vel hjá þeim. Viktoría kom inn í úrslit í 5.sæti og reið sig upp í 1.sæti með 7,2 í einkunn á Smáralind frá Syðra-Skörðugili, frábært hjá henni á sínu fyrsta móti með merina. Ásdís Ósk fékk lánaðann hest hjá afa sínum og ömmu hann Hafþór frá Syðra-Skörðugili. Honum leist nú ekkert á völlinn í fyrstu en hún náði að fleyta honum í gegnum forkeppnina og var efst í 1-2 sæti e.forkeppni. Hún hélt svo 2.sæti í úrslitum með einkunnina 6,7. Frábær árangur hjá stelpunum og það voru stoltir foreldrar sem kvöddu Hvammstanga þann dag:) Hér eru myndir frá mótinu af heimasíðu hjá Jóa og Guðný Bessastöðum sjá heimasíðu þeirra hér.
ÁÓ & Hafþór
VEE & Smáralind
Fimm efstu í þrígangi.
6.mars Helgin var viðburðarrík. Á laugardeginum mættum við galvösk á Svínavatn í alveg hreint ömurlegu veðri en þeir létu það nú ekki á sig fá knaparnir og brunuðu brautina. Elvar náði fínum árangri. Kóngur varð í 3.sæti í A-flokk og einnig í sama flokki hafnaði Dáðadrengur frá Köldukinn sem er efnilegur graðhestur sem Elvar er með í tamningu. Í B-flokki reið Elvar Stimpli frá Vatni fyrir Tryggva og náði að halda þar 3.sætinu. Í töltinu endaði Mön í 5-6 sæti. Sjá nánar um úrslit og myndir á heimasíðu Neista hér. Ég fékk lánaðar tvær myndir þar sem ég læt fylgja hér með.
Kóngur
Mön
5.mars Ditte tók nokkrar myndir á mótinu sl.helgi á Vatnshlíðarvatni
Fjóla & Lárus

Elvar & Höfðingi
4.mars Það gékk vel hjá Elvari og Mön í Töltinu KS deildinni í gærkvöld. Hann var í 4.sæti e.forkeppnina með 7,30 í einkunn í úrslitum enduðu þeir jafnir í 4-5 sæti Elvar,Mön og Magnús Bragi, Farsæll með einkunnina 7,50. Þetta voru sterk úrslit og Ísólfur Líndal og Sindri frá Leysingjastöðum lentu sigrinum að lokum eftir harða baráttu við Ólaf Magnússon og Gáska frá Sveinsstöðum en þeir fengu báðir einkunnina 8,11 og var það sætaskipan sem þurfti til að skera úr um endanleg úrslit. Ísólfur og Sindri voru vel að sigrinum komnir, frábært par þarna á ferð:) Hérna fylgja nokkrar myndir sem Sonja ljósmyndari Líndal tók í gærkvöld, sjá fleirri myndir www.laekjamot.is



3.mars - kominn nýr linkur - sumarhúsið á Fórída - kíkið hér
3.mars Komin tvo ný video á síðuna, Brjánn frá Keldudal & Lárus frá Syðra-Skörðugili - kíkið á hér.
2.mars Síðasta helgi var viðburðarrík líkt og allar aðrar helgar á þessum bæ. Elvar skellti sér á Hvammstanga sl laugardag á afmælis sýningu hjá hestamannafélaginu Þyt ásamt því að nýja reiðhöllin þeirra Þytheimar var vígð. Elvar mætti með Mön í ræktunarbússýningu fyrir Lækjamót sem heppnaðist afar vel og var dagurinn í alla staði frábær. Má sjá nokkrar svipmyndir frá sýningunni á síðu Lækjamóts www.laekjamot.is
Síðan hélt Stígandi ísmót á Vatnshlíðarvatni á sunnudaginn. Það heppnaðist afar vel þrátt fyrir kulda og trekk:) Það var mikil þátttaka og virtist fólk skemmta sér afar vel. Ásdís og Smáralind enduðu í 2.sæti í flokki 16 ára og yngri, Viktoría og Hrappur voru fyrir miðju. Brjánn frá Keldudal endaði í 4.sæti í A-flokki og Lárus frá Syðra-Skörðugili hafnaði í 2.sæti í tölti. Bara nokkuð góður árangur hjá heimilisfólkinu.
Svo er það Tölt í meistaradeild KS morgun miðvikudag 3.mars. Vonum að Mósa verði í stuði:)
23.feb Lárus frá Syðra-Skörðugili fór á sitt fyrsta alvöru mót sl. laugardag. Elvar mætti með hann á Bautatöltið á Akureyri þar sem keppt var í tölti í Skautahöllinni AK. Það gékk mjög vel miðað við fyrsta mótið hans og í raun í annað sinn sem hann Lalli litli fer að heiman. Þeir félagar fengu í einkunn 6,27 og enduðu í 17 sæti af um 70 keppendum svo það telst bara nokkuð góður árangur:) Sigurlína Erla tók nokkrar myndir af honum sem hún ætlar að senda mér fljótlega. Sigurlína tók þessar frábæru myndir af Mön á KS deildinni á miðvikudaginn.


18.feb KS deildin fór af stað í gærkvöld. Keppt var í fjórgangi og mættu þau galvösk til leiks Elvar & Mön. Mön er þó ekki komin í sitt albesta form en stóð sig án efa alveg frábærlega í gærkvöld. Eftir forkeppni endaði hún efst inn í B-úrslit með einkunnina 6,90. Þau sigruðu svo B-úrslitin með einkunnina 7,33. Í A-úrslitum stóðu þau sig alveg frábærlega og enduðu í 4.sæt með einkunnina 7,37. Keppnistímabilið fer því mjög vel af stað hjá þeim og verður gaman að sjá hvernig næsta mót fer. Það verður 3.mars og þá er keppt i tölti. Myndir frá kvöldinu eru væntanlegar:)
Mön frá Lækjamóti
16.feb Nýjar myndir og allt um Mjúkísmótið á http://www.feykir.is/archives/19834


15.feb Mjúkísmótið var haldið með stæl sl laugardag í alveg hreint frábæru veðri. Að þessu sinni voru það 6 lið sem tóku þátt þar sem Holtskot með Sigurjón bónda í fararbroddi mætti með lið. Að vanda hófst veislan með kjötsúpu í Sundahöllinni okkar og liðin kynnt. Síðan var haldið á ísinn á Holtstjörn þar sem gæðingarnir fóru á kostum. Okkar lið bar sigur úr býtum og vorum við að sjálfsögðu kampakát með árangurinn. Liðið okkar samanstóð af okkur hjónunum ásamt vinnufólki og voru það eftirfarandi:
Elvar & Laufi, Fjóla & Lárus, Ditte & Smáralind, Kathy & Kóngur, Ingó & Dreyri. Af þessum hóp voru fjögur sem komust í 6 manna úrslit og telst það nú bara frábær árangur. Dúddabeinið er því komið aftur á sinn stað í stofunni. Efsti hesturinn að þessu sinni var Vafi frá Ysta-Mó setinn af Magga Magg, hann var vel að sigrinum kominn enda frábær gæðingur þar á ferð. Í veislunni sem haldin var svo eftir keppnina voru liðin látin keppa á allt öðru sviði. Gunni Rögg var búinn að semja fyrir okkur fyrri part af vísu og átti hvert lið að koma með seinni part. Lið Ingimars Ingimarssonar með Pál Dagbjartsson sem vísnasmið bar sigur úr bítum í þeirri viðureign og hljóðaði vísan svona:
Djarft er riðið dunar jörð
Dúddabein að veði
Svona keppni í hópum hörð
Er himnesk þorragleði
Þetta var í alla staði frábær dagur og erum við sérstaklega ánægð með hve margir sáu sér fært að mæta og vera með okkur í gleðskapnum. Síðan stormuðu allir á Þorrablót um kvöldið sem var einnig frábær skemmtun. Hér koma nokkrar myndir af mótinu sem teknar voru af myndasmiðnum Kollu frá Hjaltastöðum.
Laufi & Elvar
Fjóla & Lárus
ÁÓ & Mósa
Ditte & Smáralind
Kathy & Kóngur
Ingó & Dreyri
Vafi & Maggi
8.feb. Áttum frábæra helgi. Skelltum okkur vestur á Hvammstanga og þau feðginin tóku þátt í Húnvetnsku liðakeppninni á föstudagskvöldið. Smáralind var nú eitthvað að stríða ÁÓ og vildi ekki fara á stökk og komst hún því ekki áfram að þessu sinni. Elvar mætti með ungan hest á uppleið hann Höfðingja frá Dalsgarði og það gékk bara alveg ljómandi vel, hafnaði í B-úrslitum, góður árangur á fyrsta mótinu hans:) hér má sjá úrslit mótsins.
Elvar skellti sér á reiðnámskeið til Þorvalds Árna bæði laugardag og sunnudag. Hann var mjög ánægður að loknu námskeiði. Alltaf gott að fá góða tilsögn. Nú fer öll orka heimilismanna í að undirbúa Mjúkísmótið 2010 á Holtstjörninni góðu, komum betur að því síðar - taka nk.laugardag frá og kíkja í heimsókn - góðar veigar og skemmtun í boði:)
28.jan Þá er úrtöku fyrir KS deildina lokið og heimilisfólkið getur andað léttar í framhaldinu. Það gékk mjög vel hjá Elvari. Mön stóð sig vel og hlaut einkunnina 6,47 í fjórgangi og 2.sætið. Smáralind stóð sig einnig eins og hetja hlaut í einkunn 6,13 og 1.sæti í fimmgangi. Þeir voru jafnir að heildarstigum eftir kvöldið í 1-2 sæti Elvar og Tryggvi Björnsson, Tryggvi var nú ekki síður vel ríðandi með hann Penna frá Glæsibæ í fjórgang og átti fína sýningu hlaut 6,50 og sýndi svo Óðinn frá Hvítárholti í fimmgangi og hlaut í einkunn 6,10. Frábært kvöld að baki. Læt fylgja hér mynd af þeim sem komust áfram. Skoða úrslitin hér.
27. jan Það eru komnar nýjar myndir og ný hross inn á sölusíðuna sjá hér
27. jan Í dag er úrtökumót fyrir KS deildina í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Elvar ætlar að spreyta sig þar og mæta með Mön frá Lækjamóti í fjórganginn og hana Smáralind frá Syðra-Skörðugili í fimmganginn. Krossum fingur og vonum að það gangi allt upp í kvöld:)
Mön
Smáralind
27. jan Æskulýðsstarf hestamannafélagsins Léttfeta hófst í gær. Elvar hefur tekið að sér að vera þar reiðkennari í vetur og fór þetta bara mjög vel af stað. Það er met þátttaka og virtust börnin vera ánægð. Stelpurnar fóru því á fyrsta námskeiðið í gær og gékk það bara prýðilega. ÁÓ fékk hest hjá afa sínum hann Hafþór og VEE fór með hann Hrapp okkar, hann var nú eitthvað spenntur í fyrstu enda ekki vanur að stoppa meira en 5 sek í einu í höllinni á brunaskeiði í gegn:) Hér eru nokkrar myndir frá gærdeginum.




22.jan Nú fer senn að líða að reiðnámskeiðum og mótastússi. Búið er að skrá dæturnar á reiðnámskeið sem Elvar verður með í samstarfi við Eyþór Einarsson og Þórarinn Eymundsson í reiðhöllinni Svaðastöðum í vetur. Námskeiðið er á vegum hestamannafélagsins Léttfeta og verður gaman að fylgjast með gangi mála þar:) Síðan er það úrtaka fyrir KS deildina sem verður nk miðvikudag. Elvar ætlar að skella sér í úrtökuna en er ekki endanlega búinn að ákveða hvaða hross hann ætlar með, koma tvö til greina í hvora grein. Vonandi á það eftir að ganga vel hjá honum. Kóngur frá Syðra-Skörðugili er seldur og óskum við nýjum eiganda til hamingju með hestinn. Tamningar ganga vel og eru um 38 hross í húsinu sem stendur og er Elvar með tvær bráðduglegar stúlkur sér til aðstoðar ásamt því sem dæturnar skella sér í tamningarnar eftir skóla og heimanám:)
4.jan Hann Tumi okkar fór eitthvað á stjá í sumar og heimsótti heimilistíkina á Íbishóli. Úr því urðu hvolpar alveg hreint hrikalega krúttlegir. Það er ein tík eftir af gotinu sem heimilisfólkinu á Íbishóli langar að koma á gott heimili. Hún er rosalega falleg og alveg einstaklega ljúf og góð. Hér eru myndir af henni.


3.jan
Gleðilegt nýtt ár:) Árið fór nú heldur ílla af stað á bænum þar sem á nýársdags morgun er við hjónin mættum í hesthúsið var hún Mósa litla komin með hrossasótt. En það fór nú allt vel sem betur fer og vonumst við til að hún nái sér að fullu næstu daga. Við tókum restina af þeim hrossum sem temja skal í vetur inn í gær og eru því komin rúmlega 30 hross á hús og allt efnilegt að sjálfsögðu:) Tók nokkrar myndir af stóðhryssunum í dag og læt þær fylgja hér með, einnig eru komnar myndir af folöldum ársins undir linknum ræktunarhryssur. Eins og sjá má á myndunum þá var frostið mikið í dag eða um 12 stig, læt svo fljóta með eina mynd frá því við hjónin fórum til Flórída í nóv - dálitlar andstæður í veðurfari að vetri til :)



Hér eru svon tvær myndir af honum Fagra Skjóna...........sætur:)


7.des
Desember er alltaf alveg ákaflega skemmtilegur mánuður fyrir utan útgjöldin sem fylgja jólakortum og jólapakka kaupum:) Helginni eyddum við hjónin í fjárhúsunum. Lásum á merki, gáfum ormalyf, spreyjuðum, og græjuðum fyrir gæjana. Ærnar eru nú allar málaðar og upp strýlaðar fyrir hrútana og var þeim fyrstu sleppt í ærnar í gær. Við höfum ákveðið að láta þær bera aðeins fyrr næsta vor en við höfum gert sl ár. Vonum að vorið verði gott og lömbin því væn eftir því. Þar sem myndvélin mín er í viðgerð voru því miður ekki teknar neinar myndir við þessar aðgerðir en ég læt tvær gamlar og góðar fylgja með.


24.nóv
Jæja þá eru ábúendur komnir aftur heim á klakann og tamningar á fullu þessa dagana. Erum komin með 5 stóðhesta á hús ásamt nokkrum öðrum hrossum frá okkur og öðrum sem eru aðallega í frumtamningu. Laufi og Kóngurinn eru báðir komnir í stíurnar sínar og verður spennandi að fylgjast með hvernig þróunin hjá þeim verður í vetur. Erum með nokkrar hryssur sem við eigum í frumtamningu núna, Nagladóttir sem er sammæðra Smáralind, einnig Parkers dóttir sem er sammæðra Kónginum, verður spennandi að fylgjast með þeim.
Kóngurinn frá Syðra-Skörðugili F: Klettur frá Hvammi M: Nóta frá Syðra-Skörðugili
Laufi frá Syðra-Skörðugili F: Hróður frá Refsstöðum M: Lára frá Syðra-Skörðugili
4.nóv
Að baki er frábær helgi þar sem fjölskyldan fór á Uppskeruhátíð hestamanna í Skagafirði sem haldin var í Miðgarði sl.laugardag. Hátíð var mjög vel heppnuð að okkur fannst og margt um manninn. Veitt voru verðlaun fyrir ýmis afrek á árinu og m.a. voru veitt verðlaun fyrir Hestaíþróttamenn Skagafjarðar í ýmsum flokkum. Í fullorðins flokki var það Bjarni Jónasson sem var efstur, í ungmennaflokki Ástríður Magnúsdóttir, unglingaflokki Bryndís Rún Baldursdóttir og síðast en ekki síst í barnaflokki var það frumburðurinn okkar Ásdís Ósk sem hreppti verðlaunin annað árið í röð.

Rósa Vésteinsdóttir afhendir Ásdísi Ósk bikarinn :)

f.v Bjarni Jónasson, Ástríður Magnúsdóttir, Bryndís Rún Baldursdóttir og Ásdís Ósk Elvarsdóttir
30.október 2009
Jæja þá er búið að velja ásetninginn 2009. 4 hryssur og 7 hestar sjá hér
28.október 2009
Var að lagfæra aðeins síðuna og setja inn fleirri skemmtilegar myndir í fjölskyldualbúmið sjá hér einnig var ég að uppfæra stóðhestana og setja inn þá sem notaðir voru í sumar - einnig laga síðuna um Prins sjá hér
20.október 2009
Ný video komin á síðuna. Hafþór, Kóngur, Kátur o.fl smellið hér.
16.október 2009



Var að taka video af nokkrum söluhrossum. Einnig setja inn upplýsingar um folöldin 2009 og nokkrar myndir af þeim.
8.október
Vorum í hrossastússi í gær. Smöluðum öllu stóðinu heim og fórum yfir folaldsmerarnar og einnig gerð könnun á hvort allt væri búið að skila sér af fjalli. Svo reyndist nú ekki vera því að okkur vantar eina gráa veturgamla hryssu. Það liggur nú grunur á að hún sé í landi Húnvetninga og skili sér í næstu smalamennskum :) Við ætlum að leggja áherslu á frumtamningar næstu tvo mánuðina. Tókum inn 17 frumtamningarhross á aldrinum 4-5 vetra. Þarna eru nokkur álitlegir gripir og m.a hryssa undan Tíbrá og Nagla frá Þúfu, einnig hryssa undan Nótu og Parker frá Sólheimum. Síðan er þarna brúnskjóttur hringeygður hestur undan Hróð frá Refsstöðum, og annað álitlegt ungviði. Þetta eru því spennandi tímar framundan og verður gaman að fylgjast með hvað verður úr þessum hrossum. Einnig eru við aðeins með í frumtamningu fyrir aðra en plássið er lítið eins og stendur :)
4.september Jæja komin tími á uppfærslu......:) Hér koma nokkrar myndir frá sumrinu.












29.apríl Krúttlegustu fyrirsætur í heimi.........
Var að taka nokkrar myndir af hvolpunum.........kíkið á linkinn.



20.apríl Varmahlíðarskóli sigraði á Grunnskólamótinu.



Varmahlíðarskóli fór með sigur s.l laugardag á síðasta mótinu af þrem sem haldið var í
Reiðhöllinni á Blönduósi. Eftir fyrsta mótið sem var haldið í Reiðhöllinni á Svaðastöðum tók
Varmahlíðarskóli forrystuna og hélt henni allt til enda. Það er gríðarlega mikið af efnilegum
reiðmönnum í skólanum og var lið Varmahlíðarskóla fjölmennasta liðið. Það verður gaman
að fylgjast með þessum ungu reiðmönnum í framtíðinni. Ásdís Ósk keppti á Smáralind í tölti 4-7 bekkur
og sigraði, frábært hjá skvísunni. Viktoría keppti í þrígangi 4-7 bekkur á honum Dreka sínum
gékk ljómandi vel, hafnaði í 8 sæti. Hér eru nokkrar myndir sem ég tók á mótinu.



16.apríl Hvolpar út um allt...........
16.apríl Góður árangur hjá Elvari í gærkvöld - lokamót Skagfirska mótaröðin.
Elvar skellti sér í Reiðhöllina á Króknum í gærkvöld á lokakvöld
Syðra Skörðugil | 20. apríl 2009
Nú fer að styttast í sýninguna Tekið til kostanna sem haldin verður um næstu helgi í Reiðhöllinni Svaðastöðum.
Syðra Skörðugil | 20. apríl 2009
Þriðja og síðasta grunnskólamótið í hestaíþróttum var haldið í reiðhöllinni á Blönduósi laugardaginn 18.apríl sl.