Fjölskyldan á Syðra-Skörðugili
Fjölskylduna skipa Elvar Eylert Einarsson, Sigríður Fjóla Viktorsdótir og dætur þeirra þær Ásdís Ósk (fædd 1998) og Viktoría Eik (fædd 1999).

Dæturnar að heilsa upp á reiðhestana haust 2008
Við hófum okkar búskap árið 1996 þá um sumarið. Leigðum jörðina ásamt öllu tilheyrandi af foreldrum Elvars þeim Einari Gíslasyni og Ásdísi Sigurjónsdóttur sem er fædd og uppalin á Syðra-Skörðugili. Eftir þriggja ára leigusamning var ákveðið að ráðast í kaup á jörðinni af þeim hjónum. Við höfum því nú í haust búið í 13 ár.

Hundavinurinn mikli hún Viktoría Eik með eitt afkvæmi Söru



Viktoría Eik á hestunum sínum nr1. Á Dreka á Einarsstöðum 2009 nr.2 Á Skán í hestaferð 2008 nr.3 Á Gleipni í hestaferð 2008.
Elvar er fæddur og uppalinn á Syðra-Skörðugili. Búskapur hefur því verið hans ær og kýr eins og maður segir alla tíð. Hann útskrifaðist frá Bændaskólanum á Hólum árið 1993 sem búfræðingur. Þetta var áður en farið var að útskrifa FT félaga og tók hann því FT prófið svokallaða ári seinna og er því meðlimur í Félagi tamningamanna. Árið 1996 fór Elvar aftur í Hóla og lauk þaðan reiðkennaraprófi C, síðan ári seinna lauk hann reiðkennaraprófi B frá Hólaskóla. Elvar hefur sankað að sér alls konar gráðum og réttindum í gegnum tíðina er við kemur hestamennskunni. Hann er bæði hestaíþróttadómari, gæðingadómari og alþjóðadómari.

Elvar og Mön frá Lækjamóti á Síðsumarsýningu Sauðárkróki haust 2008
Fjóla er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún fór ung í sveit í Húnavatnssýsluna til þeirra frábæru hjóna Þóris og Ellu á Lækjamóti. Þar líklega hófst allt ferlið varðandi áhugann á sveitastörfum þegar hún hljóp sveitt með hrífuna á túninu eða stóð örmagna á efstu stæðu í þurrbaggahlöðunni. Yndisleg þessi sveitastörf. Hestamennskan hófst allavega fyrir alvöru þar. Síðan 18 ára fór hún í Bændaskólann á Hólum og útskrifaðist þaðan sem búfræðingur 1993. Árið 1997 kláraði hún svo stúdentsprófið af viðskiptafræðibraut og hóf störf sem bókari hjá Leiðbeiningamiðstöðinni á Sauðárkróki 2001 (þegar það var orðið ljóst að búskapurinn nægði ekki til að framfleyta eyðslusamri fjölskyldunni). Í desember 2006 lauk hún námi sem viðurkenndur bókari frá Háskólanum í Reykjavík.

Fjóla á Smáralind frá Syðra-Skörðugili á Mjúkísmóti 2009.
Búskapurinn og hestamennskan er okkar "fjölskyldusport" ef sport má kalla með 600 kindur og um 90 hross. Fjölskyldan er mjög samhent í þessu og taka dæturnar fullann þátt í þessu með okkur þótt ungar séu. Hestamennskan á hug þeirra beggja og er transportað á námskeið og mót til að sinna ungviðinu í áhugamálunum. Þær eru mjög duglegar að fara á hestbak og erum við þakklát fyrir að ekki þurfi að draga þær frá sjónvarpinu eða tölvunni þegar minnst er á ferðir í fjárhús eða hesthús. Það eru forréttindi að ala börn upp í sveit !!!!

Ásdís Ósk á Dreka í fyrstu göngum Háheiði haust 2008.


Fyrir og eftir smalamennskur haust 2006. Fyrsta ferðin í fjöllin.


Tekið þátt í Æskan og hesturinn á Sauðárkróki 2006. Sú yngri ekki orðin alveg nógu gömul til að vera á alvöru hesti.
Syğra Skörğugil | 20. apríl 2009 Nú fer að styttast í sýninguna Tekið til kostanna sem haldin verður um næstu helgi í Reiðhöllinni Svaðastöðum.
Syğra Skörğugil | 20. apríl 2009 Þriðja og síðasta grunnskólamótið í hestaíþróttum var haldið í reiðhöllinni á Blönduósi laugardaginn 18.apríl sl.
|