Hrossaræktarsamband Skagafjarðar
RSSEnglish language


Samstarfsaðilar SveitaSælu 2008

Fluga ehfKjörafurðastöð KSHestamannafélagið LéttfetiMatarkistan Skagafjörðursveitasaela_simonsk.jpg

Kaupfélag SkagfirðingaSparisjóður SkagafjarðarSveitafélagið Skagafjörður


Umhverfisverðlaun 2008Gröfur Rúnars SímonarssKálfasýning 2008

Landbúnaðarsýningin og bændahátíðin SveitaSæla 2008 fór fram á Sauðárkróki um helgina í blíðskaparveðri. Hátt í fjögurþúsund gestir sóttu sýninguna heim og voru margir sammála um að mikill hátíðarbragur væri yfir svæðinu. Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg og óhætt er að segja að þetta sé stærsta sýningin til þessa og að aldrei hafi verið meira um að vera. Hver fermetri í reiðhöllinni var vel nýttur og dreifðist fólksfjöldinn jafnt um allt svæðið. Yfir 40 aðilar voru með vörur sínar til sölu og sýnis og má segja að sýningin hafi gegnið í alla staði mjög vel fyrir sig. Veitingasvæðið vakti mikla lukku meðal gesta og sýnenda og var bekkurinn ávallt þétt setinn. Þar var hægt að fá sér góðan heimilislegan mat og girnilegar kökur með kaffinu meðan verið var að safna kröftum fyrir nætu yfirferð um svæðið.

 Á föstudagskvöldið var boðið upp á heilgrillað naut og voru hátt í 600 manns mettaðir á þessum 240 kílóa grip, á meðan Gunnar Rögnvaldsson, kenndur við Löngumýri og Íris Olga Lúðvíksdóttir frá Flatatungu skemmtu gestum með söng og glensi. Keppnin um fjölhæfasta og sterkasta bónda norðanlands var skemmtileg og spennandi allt til loka. Það var sannarlega fjölhæfasti keppandinn sem bar sigur úr bítum að þessu sinni, Magnús Bragi Magnússon, Íbsen, hestamaður, -miðlari og smali ársins sem bætti þar við sig enn einum titlinum í safnið.

Félagar í Soroptimistaklúbbi Skagafjarðar skipuðu dómnefnd, sem fór um héraðið og völdu verðlaunahafana fyrir Umhverfisverðlaun Skagafjarðar. Það voru þær stöllur Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir varaformaður Umhverfis og samgöngunefndar Skagafjarðar sem afhenti Umhverfisverðlaunin í ár ásamt Ingibjörgu Sigfúsdóttur formanni fjáröflunarnefndar klúbbsins. Að þessu sinni var gatan Hólatún valin fallegasta gatan, bærinn Hamar fyrir snyrtilegustu bújörðina með hefðbundinn búskap, Víðimýrarkirkja var valin snyrtilegasta stofnunin og Kimbastaðir var valinn snyrtilegasta heildsársbújörðin án hefðbundins búskapar. Listasmiðjan Bær á Höfðaströnd fékk viðurkenningu fyrir einstakt verkefni og garðurinn við Ártún 15 fékk verðlaun fyrir fallegasta garðinn í þéttbýli. Það má með sanni segja að þessir aðilar eru vel að viðurkenningunum komnir.

Mikill fjöldi barna kom til að taka þátt og hlusta á söngvakeppni Söngvaborgar sem fram fór við Tjarnabæ í sól og sumarblíðu á sunnudaginn. Vakti þessi viðburður mikla lukku meðal gesta og var kærkomin viðbót við annars góða landbúnaðarsýningu. Sólin lék aldeilis við gesti sýningarinnar og fór hitinn yfir 20°C þegar best lét.

Kálfasýningin vekur alltaf mikla eftirtekt og var svo einnig nú. Áhorfendabekkirnir fylltust á örskotsstundu þegar áhorfendur fylgdust með börnunum teyma kálfa sína fram og til baka eftir brautinni með misjöfnu miklu brasi. Voru ýmis brögð notuð til að lokka þá áfram. Þeir félagar Jón Hjálmar Ingimarsson og Leó Einarsson 5 ára gamlir, hömpuðu áhorfendabikaranum í lokin. Vöktu þeir mikla kátínu meðal áhorfenda þar sem þeir náðu að lokka kálfinn áfram með því að leyfa honum að sjúga hendina á sér, enda greyið lang yngsti kálfurinn á svæðinu aðeins 17 daga gamall. Það var svo hún Hrafnhildur Ósk Halldórsdóttir með hana Grímu frá Tunguhálsi sem bar svo sigur úr býtum í sjálfri kálfakeppninni.

Það væri of langt mál að telja upp allt sem markvert var á sýningunni og látum við því staðar numið hér í bili.

Við þökkum öllum þeim sem heimsóttu okkur á landbúnaðarsýninguna SveitaSælu 2008 kærlega fyrir komuna. Einnig viljum við þakka öllum þeim fjölmörgu sem komu að undirbúningi og framkvæmd sýningarinnar. Sérstakar þakkir fá styrktaraðilar sýningarinnar.

Sjáumst að ári liðnu

Sýningarstjórn SveitaSælu 2008

Rósa María Vésteinsdóttir, sýningarstjóri

Eyþór Jónasson, sýningarstjóri

 


Smellið hér til að sjá auglýsingu um sýninguna - OPNA


 

Ágústsólin í Skagafirði

 

Skemmtum okkur í Skagafirði á Sveitasælu 2008

 

Undirbúningur fyrir SveitaSælu 2008 í Skagafirði er á síðustu metrunum og gengur gríðarlega vel. Sýningin er nú haldin í fjórða sinn í og við reiðhöllina Svaðastaði á Sauðárkróki og stefnir í mikla hátíð. Síðasta sýning sló öll met en þá komu yfir fjögur þúsund gestir allsstaðar af landinu á sýninguna.

 

Setningarathöfnin fer fram kl 18 föstudaginn 15. ágúst. Guðmundur Guðlaugsson sveitastjóri Skagafjarðar flytur ávarp og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Einar K. Guðfinnsson mun setja sýninguna. Jóhann Már Jóhannsson syngur nokkur lög við undirleik Thomas Higgerson. Sýningin hefst kl:16:00 sama dag og lýkur kl.17:00, sunnudaginn 17.ágúst.

 

Þema sýningarinnar í ár eru hestar og hestamennska. Hægt verður að borða, skoða og kaupa allt milli himins og jarðar sem tengist hestamennsku og landbúnaði almennt. Vinsælir dagskrárliðir verða áfram á sínum stað s.s. véla- og vörusýning, markaður, húsdýragarður, kálfasýning, hrútasýning, smalahundasýning og leiktæki fyrir börnin, einnig verða umhverfisverðlaun Skagafjarðar afhent. Flutt verða fræðsluerindi um íslenskan landbúnað í Tjarnabæ. Júlíus á Tjörn verður með stórsýningu á íslensku landnámshænunni, þar sem m.a. verður hægt að sjá unga skríða úr eggjum. Fólk ætti því að geta notað tækifærið og gert kjarakaup sýningardagana því ýmiss tilboð eru í gangi hjá sýnendum.

 

Í tilefni 90 ára afmælis dráttarvélarinnar á Íslandi munu Skagfirskir bændur fjölmenna á svæðið með dráttarvélarnar sínar og margskonar tæki og bjóða gestum að skoða.

 

Gestum og gangandi verður boðið að sækja bændur heim og verður að því tilefni opið hjá þeim Birni og Magneu í nýju hestamiðstöðinni á Varmalæk, stærsta hesthús landsins Brúnastaðir á Hólum verður opið og nýtt hátæknifjós hjá þeim hjónum Pálma og Ásu í Garðakoti í Hjaltadal verður til sýnis.

 

Á SveitaSælu 2008 er lagt upp með nýjar og frísklegar áherslur fyrir alla aldurshópa og verður mikið um að vera þessa helgi. Skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna verður við reiðhöllina á föstudags- og laugardagskvöldið. Á föstudagskvöldið fer fram ný keppnisgrein, leitin að fjölhæfasta og sterkasta bónda norðanlands sem án efa mun verða mikil skemmtun fyrir áhorfendur.  Á laugardagskvöldið verður heilgrillað naut í boði félags kúabænda og eftir það verður skemmtikvöld með tónlist, glens og gaman. Að sjálfsögðu koma hestar þar einnig við sögu en í samstarfi við Hestamannafélagið Léttfeti mun verða hörku töltkeppni og kappreiðar þar sem vegleg verðlaun verða í boði. Söngvaborg kemur svo í heimsókn á sunnudeginum ásamt þeim stöllum Siggu Beinteins, Maríu Björk, Helgu Braga, Georg og skemmtir börnunum. 

 

Það er ekki nokkur spurning við skemmtum okkur alltaf vel í Skagafirðinum.

 

Sýningarstjórar sýningarinnar eru þau Rósa María Vésteinsdóttir, bóndi á Narfastöðum og BA nemi við Ferðamáladeild Hólaskóla og Eyþór Jónasson, reiðkennari. Áhugasamir um SveitaSælu 2008 geta sent okkur línu á netfangið landbunadarsyning@bondi.is.


Áhugasamir um SveitaSælu 2008 geta sent okkur línu á netfangið landbunadarsyning@bondi.is

Verið velkomin á SveitaSælu 2008 og njótið gleði og gestrisni Skagfirðinga

www.skagafjordur.is

www.skagafjordur.com

Upplýsingamiðstöðin í Varmahlíð sími 455 6161


SveitaSæla 2008 landbúnaðarsýning og bændahátíð 15.-17. ágúst í reiðhöllinni Svaðastöðum, Sauðárkróki

  

 

 

 

Jón Hjálmar Ingimarsson og aðstoðarmaður hans Leó Einarsson, 5 ára hlutu áhorfendabikarinn í kálfakeppninni.
Jón Hjálmar Ingimarsson og aðstoðarmaður hans Leó Einarsson, 5 ára hlutu áhorfendabikarinn í kálfakeppninni.

SveitaSæla 2008

Landbúnaðarsýning & bændahátíð

Bestu þakkir til allra sem heimsóttu okkur á Landbúnaðarsýninguna SveitaSælu á Sauðárkróki helgina 15.-17. ágúst. Einnig þökkum við öllum þeim fjölmörgu aðilum sem komu að undirbúningi og framkvæmd sýningarinnar. Sérstakar þakkir fá styrktaraðilar sýningarinnar. Sjáumst að ári liðnu. Stjórn SveitaSælu 2008
:: meira
Ágústkvöld í Skagafirði
Ágústkvöld í Skagafirði

SveitaSæla 2008

Landbúnaðarsýning & bændahátíð

Komin er inn nákvæm dagskrá fyrir sýningardagana og þau atriði sem verða í gangi þessa dagana.
:: meira

SveitaSæla 2008

Ný og glæsileg kappreiðabraut

Á Sauðárkróki er staðið í stórframkvæmdum á félagssvæði Léttfeta. Þar er verið að bæta við einni glæsilegustu kappreiðabraut landsins og er áformað að hún verði vígð á Landbúnaðarsýningunni sem haldin verður í og við reiðhöllina Svaðastaði á Sauðárkróki daganna 15.-17. ágúst.
:: meira
Hanar frá Tjörn á Vatnsnesi
Hanar frá Tjörn á Vatnsnesi

SveitaSæla 2008

Landbúnaðarsýning & bændahátíð

Landnámshænsnastofninn á Tjörn verður 30 ára gamall nú seinnipartinn í ágúst.
:: meira

SveitaSæla 2008

Landbúnaðarsýning & bændahátíð

Nú hefur verið staðfest að Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Einar K. Guðfinnsson mun flytja opnunarávarp landbúnaðarsýningarinnar á Sauðárkróki í sumar. Opnunardagskrá sýningarinnar mun hefjast kl 18.00 föstudaginn 15. ágúst í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki.
:: meira

SveitaSæla 2008

Landbúnaðarsýning & bændahátíð

Nú er allt að smella saman fyrir Landbúnaðarsýninguna & bændahátíðina sem verður 15.-17. ágúst nk. í og við reiðhöllina Svaðastaði. Eitt er víst að nóg verður um að vera fyrir stóra sem smáa á sýningunni í ár og er mikið lagt upp úr því að gera sýninguna þannig úr garði gerða að öll fjölskyldan geti átt skemmtilega helgi saman.
:: meira

SveitaSæla2008

Landbúnaðarsýning & bændahátíð

Sýningarstjórar landbúnaðarsýningarinnar þau Eyþór Jónasson og Rósa María Vésteinsdóttir eru þessa dagana í viðræðum við sýnendur. Allir þeir sem áhuga hafa á að sýna vörur sínar eða selja á sveitamarkaðnum endilega farið inn á heimasíðuna og skoðið hvað við höfum upp á að bjóða. Allir eru hjartanlega velkomnir að vera með, þeir sem hafa áhuga á að sýna geta haft samband við okkur, netfangið er  landbunadarsyning@bondi.is eða hringt í okkur. Rósa María Vésteinsd. gsm 861 3460 og Eyþór Jónasson gsm 848 2725.

 

:: meira

SveitaSæla 2008

Landbúnaðarsýningin & Bændahátíðin SveitSæla verður haldin í Reiðhöllinni Svaðastöðum í fjórða sinn í sumar. Síðasta hátíð sló öll met þegar á fimmta þúsund gestir allsstaðar af á landinu sóttu sýninguna heim.
:: meira

Umhverfisverðlaun Skagafjarðar

Nú eru komnar hér inn á síðu Landbúnaðarsýningarinnar upplýsingar um sigurvegara Umhverfisverðlauna Skagafjarðar 2007, en þau voru afhent á sýningunni laugardaginn 18. ágúst sl.
:: meira

Sigurvegarar kálfa- og hrútasýninga

Nú eru komnar hér inn á síðuna upplýsingar um sigursælustu keppendur í kálfa- og hrútasýningum Landbúnaðarsýningar 2007. Þeir sem luma á myndum af keppendum með dýrin sín mega gjarna senda þær á landbunadarsyning@bondi.is
:: meira

Á fimmta þúsund gestir komu á SveitaSælu 2007!

Nú er lokið SveitaSælu 2007 - Landbúnaðarsýningu & Bændahátíð á Sauðárkróki. Gríðargóð aðsókn var að sýningunni, en alls komu yfir fjögur þúsund manns, sem er meira en tvöföldun frá því í fyrra. Mál manna er að vel hafi til tekist, bæði gestir og fyrirtækin sem tóku þátt voru almennt mjög ánægð og stemning góð alla sýningardagana. Sýningarstjórn þakkar gestum komuna, starfsfólki vel unnin störf og fyrirtækjum sem kynntu sína starfsemi, auk þeirra fjölmörgu sem lögðu hönd á plóginn; allir lögðust á eitt við að gera Landbúnaðarsýninguna 2007 jafn vel heppnaða og raunin varð. Takk fyrir okkur og vonandi sjáumst við öll að ári liðnu!
:: meira

Hálfskýjað, hægviðri og hlýindi

Nú á síðasta degi Landbúnaðarsýningar 2007 er kyrrt og milt veður í Skagafirði, 14 stiga hiti kl. 10, og allt útlit fyrir fallegan sunnudag. Sýningin opnar kl. 11 og er opin til kl. 17. Á dagskrá er kynning á krökkum og kálfum frá Kálfasýningu, sem og kynning og lýsing á dómum á þremur efstu hrútum frá í gær. Hátæknifjósið í Birkihlíð er opið frá kl. 14 - 17, en þar var mikið fjölmenni í gær. Matarkistan Skagafjörður, Kjötafurðastöð KS og fleiri verða með girnilegt smakk, kynnt verður hvaða hani og hæna urðu hlutskörpust í fegurðarsamkeppni sýningargesta og ýmislegt fleira verður á boðstólum. Nú fer hver að verða síðastur að skella sér á Landbúnaðarsýningu 2007!
:: meira