


Narfastaðir
04.01.2008 - Fréttir
Þessa dagana er starfsemin í hesthúsinu að komast í samt horf eftir hátíðirnar. Í vetur verða 3 tamningamenn að störfum í hesthúsinu fyrir utan þá félaga Bjarna og Berg. Riikka hin finnskættaða mær mætir aftur eftir nokkura mánaða hvíld og Júlía Stefanie sem virðirst hafa skotið hér rótum og starfar nú hér sitt fjórða ár. Nýliðinn að þessu sinni er Fljótamaðurinn, Þorsteinn Þorsteinsson sem verður hér í verknámi frá Hólum undir handleiðslu Júlíu.
Starfsemin
Þann 01. janúar 2007 var ný reiðhöll tekin í notkun sem gjörbreytt hefur allri vinnu og tamningu hér á bæ. Einnig fékk hesthúsið andlitslyftingu og var það stækkað um 12 pláss og er þar nú pláss fyrir 42 hross. Er það von okkar að þessi síða fari ört vaxandi með hækkandi sól.
Þjónusta
Tökum að okkur tamningu, þjálfun og á sýningu á hrossum.
Þeir sem vilja hafa samband við okkur geta sent tölvupóst á narfastadir@simnet.is
Bergur Gunnarsson og Rósa María Vésteinsdóttir
Bjarni Jónasson og Unnur Ólöf Halldórsdóttir
Engar fréttir fundust.