
Enni í Viðvíkursveit er í austanverðum Skagafirði, u.þ.b. 18 km frá Sauðárkróki. Jörðin er u.þ.b. 370 hektara. Hrossarækt hefur verið stunduð á Enni síðan 1948, fyrst af Kristjáni Einarssyni og konu hans Laufeyju Magnúsdóttur og af núverandi ábúendum, dóttur þeirra, Eindísi Kristjánsdóttur og Haraldi Þór Jóhannssyni eiginmanni hennar. Fyrstu hrossin voru af Kolkuós- og Svaðastaðastofni. Ræktunarmarkið hafa alltaf verið að rækta framfalleg og skrefmikil hross með góðu tölti, til þess höfum við notað úrvals stóðhestar.
Í gegnum tíðina hefur skjótti liturinn alltaf verið ríkjandi í stofninum og höfum við reynt að halda honum við með því að leiða undir hesta af skjóttu kyni.
Búið hefur verið undanfarin ár í gæðastýringu í hrossarækt (meiri upplýsingar á www.worldfengur.com) og eru hrossin A vottuð.
Engar fréttir fundust.