Hrossaræktarsamband SkagafjarðarRSS

 

Séð frá Fagranesi

Útsýni yfir Skagafjörðinn frá Fagranesi.

 

Auður á LöngufjörumBrynjólfur á Löngufjörum
Auður og Brynjólfur á Löngufjörum

 

 

Auður Inga Ingimarsdóttir S: 847-5294
Brynjólfur Þór Jónsson S: 865-0946
Fagranes
551 Sauðárkrókur
Iceland
fagranes@visir.is


 

Drangey
Drangey

Mjög góð helgi

Þá er afmælishelgin mikla afstaðin! 25 ára afmælið mitt var haldið með pompi og prakt í hesthúsinu. Nægur matur var og drykkir, kökur í eftirrétt, söngur sem meðlæti og gleði í aðalrétt :) Fólksfjöldinn mældist vel á sjötta tuginn, og vil ég Þakka öllum sem mættu fyrir að koma og gleðjast með okkur !

En tiltekt er nánast lokið og hesthúsið farið að líta aftur út eins og tamningarstöð og við farin á fullt að temja. Skemmtilegir og spennandi tímar framundan. Þar sem minn heittelskaði gaf mér myndavél í afmælisgjöf get ég fljótlega komið inn nýjum og skemmtilegum myndum af hestunum sem eru á húsi núna.
:: meira
Eldur frá Fagranesi
Eldur frá Fagranesi

kominn tími á nýja frétt

Öss hvað tíminn líður hratt. Mér finnst enganveginn eins og það sé svona langt síðan ég setti inn frétt seinast!!! :)
Haustið er búið að fara í tamningar og smíðar og allskonar stúss. Ýtumaðurinn var hjá okkur í nokkra daga um daginn, ýtti stærðarinnar plan sunnan við lón þar sem hringvöllurinn verður, og ýtti "gamla-veginn" í fjallinu, þannig við erum komin með góðan reiðveg þar. Ýtumaðurinn var meirað segja svo magnaður að hann ýtti upp rosalega flottum og stórum skjólveggjum í hólfunum okkar niðri á mel. Þannig núna geta hestarnir hiklaust verið úti þótt hann blási smá.

Á laugardaginn næsta (ekki á morgun heldur hinn) verður fjölda fólks boðið að koma í hesthúsið okkar og halda með okkur uppá afmælið mitt. Það stefnir í að verða frábær skemmtun, gleði, söngur og góðir vinir.

Hafþór Ingi stækkar og stækkar eins og lög gera ráð fyrir. Kominn með 2 tönnslur, syngur og trallar.

Á laugardaginn sækjum við bræðurnar Eld og Steinnes í Torfgarð, þeir eru búnir að vera þar í stóðhestagirðingu síðan í sumar. Verður gaman að fá þá heim og kynnast þeim aðeins betur, sérstaklega Steinnes, því hann var svo styggur. Eldur er undan Fagra og Steinnes undan Kiljan.

 

:: meira
Hringgerði við norðurenda hesthússins, notað til að ríða utanum.
Hringgerði við norðurenda hesthússins, notað til að ríða utanum.

alltaf einhvað að brasa

Í mörg horn er að líta á stóru búi :)
Tiltektir og viðgerðir eru partur af haustverkunum. Við erum alltaf að reyna að bæta tamningar aðstöðuna okkar smátt og smátt, og nýjasta nýtt er að Brynjólfur er að gera stærðarinnar hurð á reiðskemmuna sem hægt verður að ríða út um. Það verður mikill munur. Næst á dagskrá er svo að gera barnaherbergi fyrir Hafþór Inga. Það eru ekki allir svo heppnir að geta haft barnið með sér í vinnunni, og þá er miklu betra að hafa góða aðstöðu fyrir alla.
Af nógu er að taka líka í tamningunum, reyndar var stór hópur að útskrifast um seinustu helgi, og kom sá hópur allur frá Ísafirði og fór til eigenda sinna núna.
Ég hef með nokkrar nýjar myndir af aðstöðunni hjá okkur. Til viðbótar við þessi gerði á myndunum er stórt ferkantað gerði úti, góð og mjög gagnleg reiðskemma, með hringgerði í öðrum endanum og riðið út í hinum endanum. Hesthúsið telur núna 16 góðar stíur og þeim fer fjölgandi, auk stórrar stíu fyrir folöld. Við erum svo með "fjárhús" og hænsakofa :)

:: meira
Sýn frá Fagranesi m.Neista f.Hergill frá Oddhól
Sýn frá Fagranesi m.Neista f.Hergill frá Oddhól

Tryppin komin heim af fjalli

Haldið var í göngur í gærmorgun við töluvert skemmtilegri aðstæður heldur en seinustu helgi. Í gær var svo fallegt veður, aðeins kuldi í lofti, en svo sólríkt og yndislegt. 
Ég og Hafþór Ingi fylgdumst bara með smalamennskunni frá veginum og sögðum þeim til sem voru í fjallinu.

Tryppin komu flestöll heim og bara í flottu standi, við áttum nú ekki mörg á fjalli þetta árið, einungis 16.
Því miður er myndavélin biluð, svo ég tók engar myndir í gær.
Hafþór Ingi stóð sig mjög vel í réttinni, var alveg ferlega krúttilegur í gallanum sínum. 

Annars erum við mest að temja þessa dagana, erum að farað sortera hvaða hestar fá smá frí núna og hverjir fá að halda áfram í haust :)

:: meira

Tamningar ganga vel

Mikið hefur verið tamið undanfarnar vikur í Fagranesinu. Góður hópur er hjá okkur af aðkomuhestum, mest í frumtamningu, en nokkur í framhaldsþjálfun. Einnig eigum við hrúgu af hrossum sjálf sem verið er að gera reiðfært og koma í sölulegt horf. Höfum tröllatrú á þvi að þessi pestarmál fari að skírast og útflutningur verði leyfður í haust.
Við erum með í tamningu nokkur Fagra -börn, og eru þau með því efnilegra og skemmtilegra í húsinu um þessar mundir. 7 vetra hryssa, Upplyfting frá Skuggabjörgum, 6 vetra folar Glæbon frá Fagranesi og Dropi frá Fagranesi, 4 vetra foli Amor frá Fagranesi og 4 vetra hryssa sem kölluð er Halla frá Meyjarlandi. Þau eiga það helst sameiginlegt að vera lofthá og léttbyggð, ekki holdsækin, skemmtilegt geðslag og mikinn fótaburð. Þau fara mjög vel undir, bæði knapa og sjálfum sér.
Heyskapur er í þann mund að klárast, heyjast hefur mjög vel, betur en undanfarin ár.

Hafþór Ingi braggast vel. Dundast með okkur í hesthúsinu allan daginn. Ýmist sefur í vagninum eða spókar sig um og skoðar hesta, tamningar og járningar. Hann er orðinn heljarinnar langur pjakkurinn og segist ætla að verða jafn stór og pabbi sinn, ef ekki stærri ;) Hann er orðinn 3ja mánaða og er að uppgötva fullt af hlutum.

Á myndinni eru Auður og Fagri að keppa í Kvennatölti.
Gráa hryssan á neðri myndinni er systur dóttir hans Fagra, undan Fegurð (F.Fáfnir). Hún er reiðfær og gengur vel að temja hana.

:: meira

Allt komið á fullt

Allt er komið á fullt í hestamennskunni á þessum bænum, vinnukonan er mætt frá Austurríki, tamningarnar ganga mjög vel og veðrið hefur leikið við okkur. Einhvað af hestum damlast í pest af og til, en vonandi fer þetta að klárast.

:: meira

Rúntað um með hryssur

Í gær keyrðum við um fjörðinn fagra með nokkrar hryssur.
Skiluðum Perlu í Skuggabjörg til Palla og Tullan. Perlu var haldið undir Eldinn. Við fórum með Von í Vatnsleysu undir Sindra (sjá mynd). Við fórum svo með tvær hryssur fyrir vinafólk okkar í Þýskalandi undir Roða frá Garði.
Þá eigum við eftir að fara með Drottningu undir Meyvant frá Feti og Freystingu undir Prins frá Garði.
:: meira

Loksins fréttir

Sumarið er tíminn, þó allt sé í pesti.
Fullt er hægt að bölsótast yfir andsk. pestinni, en staðan er þannig á þessum bæ að það er ekkert riðið út. Ekki gagnast að tuða mikið yfir því, því þannig er bara staðan.
Við sitjum þó ekki aðgerðarlaus, því af nógu er að taka. Auður er búin að þrífa hesthúsið, Brynjólfur er á fullu að koma niður nýjum girðingastaurum og Hafþór Ingi rúntar með í vagninum.
Við erum búin að fá nokkur folöld, en ein hryssa er eftir óköstuð. Við erum búin að fá rauðan tvístjörnóttan hest undan Spes frá Fagranesi og Eld frá Fagranesi. Það var reyndar ekki skipulagður getnaður, en folinn er ansi smart. Léttur í hreyfingum og fallegur. Næst kastaði Spurning, rauðri hryssu undan Eldinum okkar. Hún er virkilega flott. Með hátt settan háls og fer um á flottu brokki. Þriðja folaldið er undan Eldey og Feng frá Sauðárkróki. Þetta er þriðja folaldið sem við fáum undan Eldey, og þriðji hesturinn. Þessi er brúnn einlitur, svolítill baukur í byggingu, en með geggjaðan fótaburð. Brokkar um og lyftir alveg vígalega. Neista er enn óköstuð, en hún er fylfull við Dofra frá Steinnesi.
Búið er að halda Spurningu aftur undir Eldinn, og við fengum eina hryssu lánaða frá Skuggabjörgum til að halda undir Eldinn líka. Til er hryssan Uplyfting frá Skuggabjörgum sem við eigum, undan þessari hryssu og Fagra, sérlega skemmtileg og flott hryssa, þannig okkur datt í hug að reynað fá aðra til, og halda mömmunni undir Eldinn.
Eldey og Fegurð fóru í dag undir Smára frá Skagaströnd. Við erum mjög spennt fyrir því hvað það gefur af sér næsta sumar. Næst á dagskrá er að fara með Drottningu undir Meyvant frá Feti, Freystingu undir Prins frá Garði og Von undir Sindra frá Vatnsleysu, sjáum svo til hvað við gerum við Neistu.

:: meira

Hálfnuð í Þýskalandi

Þá eru bara 4 vikur í að við komum heim. Það gengur vel hérna úti, trippin temjast og reynslubankinn okkar stækkar. Trippin eru öll orðin nokkuð reiðfær, þó auðvitað sum komin lengra en önnur.
Okkur hlakkar til að koma heim og taka inn hrossin okkar og farað þjálfa. Vinnutíminn hér úti er vel innan marka, og því nægur tími til að skipuleggja komandi vetur á kvöldin :)

:: meira

Uppfærslur

Þá er loksins komið að því að uppfæra síðuna. Nýjar myndir og hross komin inn á sölusíðuna. Við erum að mynda dágóðan hóp af hestum þessa dagana, þvi næst á dagskrá er að rífa undan öllum gripunum og skreppa til Þýskalands. Við verðum næstu 2 mánuði að temja hjá Rúnu Einars og Karly Zingsheim. Mikið hefur verið um tamningar í sumar og 4 stelpur (1 frá Austurríki og 3 sænskar) hafa aðstoðað okkur síðan við komum heim úr stóru hestaferðinni. Við höldum áfram að hlaða inn nýjungum á sölusíðuna næstu daga.
:: meira