Hrossaræktarsamband SkagafjarðarEnglish languageRSS

Nýtt - Tígull frá Runnum & Taktur frá Hestasýn

Hér eru nokkrir hestar sem eru til sölu júní 2010.  Sumir eru meira tamdir en aðrir eins og gengur og gerist. Kannski finnur þú eitthvað við þitt hæfi.  Síðan eru mörg ungviði til sölu undan 1.verðl stóðhestum og góðum hryssum.

Here are some horses that are for sale at the moment from Syðra-Skörðugil. Some of them are fully trained but others are little trained.  Maybe you find something you have been looking for !!

Taktur IS2002101126 frá Hestasýn

Taktur.jpg

F: Huginn frá Haga 1

M: Fiðla frá Stakkhamri 2

Taktur er mjög góður alhliða hestur.  Hann hefur gott tölt, brokk og skeið.  Hentar því mjög vel sem bæði fimmgangshestur sem og A-flokks gæðingur.  Hann er mjög meðfærilegur í umgengni og í reið.  Geðslagið er gott og því auðveldur fyrir nánast alla.  Taktur hentar vel sem keppnishestur fyrir börn og unglinga.

 

Tígull IS2005135857 frá Runnum

Tígull.jpg

 

F: Gauti frá Reykjavík

M: Drottning frá Krossi

Tígull er 5 v stóðhestur.  Hann er afar fallegur á litinn eða leirljós með stóra tígullagaða stjörnu.  Hann er mjög myndarlegur og hefur hlotið 7,86 fyrir sköpulag.  Tígull er mjög meðfærilegur í umgengni og afar vinalegur.  Hann er með mjúkt og hreint tölt og einnig mjúkt og ferðagott brokk.  Tígull gæti hentað sem keppnishestur fyrir barn og eða ungling.

 

Dreyri IS2003157505 frá Syðra-Skörðugili

 

Dreyri-2.jpg

F: Kraftur frá Bringu

M: Dama frá Syðra-Skörðugili

Dreyri er alveg úrvals reiðhestur.  Frábær ferðahestur, töltið mjúkt og ferðmikið, brokkið ásetugott og viljinn mikill.  Hann er ekki fyrir alveg óvana.  Fótaburður er góður.  Dreyri er alveg drauma reiðhestur fyrir vana.

 

 

Brjánn IS2001157022 frá Keldudal SELDUR

Brjánn.JPG

F: Safír frá Viðvík

M: Drótt frá Keldudal

Brjánn er alhliða hestur.  Gangtegundir eru allar góðar, skrefmiklar og rúmar.  Fótaburður mjög góður.  Hann er viljugur og skemmtilegur til reiðar.  Skeiðið er ferðmikið og brokkið rúmt.  Hentar mjög vel sem keppnishestur jafnt í A-flokk sem fimmgang eða skeið.

Brjánn - video

Miskunn IS2002257519 frá Syðra-Skörðugili

MiskunnII.JPG

F: Skorri frá Gunnarsholti

M: Mön frá Syðra-Skörðugili

Miskunn er brún frekar smávaxin.  Hún er ljúf og skemmtileg í allri umgengni en pínu viðkvæm þegar komið er á bak og hentar því ekki fyrir óvana.  Hún er klárhryssa með gott brokk og tölt, fótaburður góður.  Hún gæti hentað vel sem reiðhross því viljinn er góður og hún er dugleg þrátt fyrir stærð:) Prýðis hryssa.  Mön hefur staðið sig vel sem ræktunarhryssa og hefur gefið dugleg og góð reiðhross.

Hrólfur IS2003157616 frá Syðra-Skörðugili

20.07.2009 877.jpg

F: Hróður frá Refsstöðum

M: Tíbrá frá Syðra-Skörðugili

Hrólfur er alhliða hestur, mikill gangur og er hann efnilegt tryppi.  Hann er litið taminn en lofar góðu.  Ættirnar eru spennandi þar sem hann er Hróðssonur og undan henni Tíbrá sem er 1.verðlauna hryssa.  Hrólfur er því sammæðra henni Smáralind sem einnig fór í 1.verðlaun nú í sumar og hefur verið að gera góða hluti á keppnisvellinum.

 

 Silfurtoppur frá Syðra-Skörðugili IS2004157501

20.07.2009 757.jpg

10.01.2009 037.jpg

F: Tígur frá Álfhólum

M: Silfurtá frá Hofsstaðaseli

Silfurtoppur er eins og myndin sýnir mjög flottur á litinn.  Hann er orðinn ágætlega reiðfær og stefnir í að vera afbragðs reiðhestur.  Hann er mjúkur og ganglagið er skemmtilegt.  Móðir hans var afbragsgóð tölthryssa, viljug og skemmtileg.

Snæfaxi frá Syðra-Skörðugili IS2005157501

 

10.01.2009 029.jpg

F: Farsæll frá Íbishóli

M: Silfurtá frá Hofsstaðaseli

Snæfaxi er líkt og bróðir sinn hér að ofan alveg frábær á litinn.  Hann er alveg hvítfextur og með mikið fax og tagl.  Geðslagið afar gott því hann sækir í að láta klappa sér og virðist vera hinn rólegasti.  Snæfaxi er orðinn reiðfær og hefur alla burði til að verða afbrags reiðhestur. Spennandi hestefni og ekki skemmir liturinn fyrir.

 

Gambur frá Syðra-Skörðugili IS2003157510

20.07.2009 840.jpg

10.01.2009 195.jpg

Gambur er hægra megin á myndinni.

F: Hjálmar frá Vatnsleysu

M: Glöð frá Syðra-Skörðugili

Gambur er rauðblesóttur, glámblesóttur, sokkóttur.  Hann er mjög skemmtilegur á litinn og alveg risa stór.  Gambur er undan henni Glöð okkar og hún hefur gefið okkur afbragðs reiðhesta og er hann engin undanteknin frá þeirri reglu.  Hann er gríðarlega stór og sterkur hestur.  Fótaburður góður. Brokkið er rúmt og skrefmikið og töltið gott.. Efni í keppnishest.


Stefnir frá Syðra-Skörðugili IS2003157511

20.07.2009 854.jpg

10.01.2009 194.jpg

Stefnir er vinstra megin á myndinni.

F: Hjálmar frá Vatnsleysu

M: Pía frá Syðra-Skörðugili

Stefnir er rauðblesóttur, sokkóttur.  Klikkar ekki liturinn undan Hjámari.  Við höfum átt töluvert af afkvæmum undan honum og 95% þeirra eru rauðblesótt með einhvers konar önnur einkenni, þ.e sokkótt, glámblesótt, hringeygt.  Stefnir er gott efni í góðan reiðhest, geðslagið gott og prúður í allri umgengni.  Stefnir er mjög fallegur.  Tölt og brokk gott.