Sauðfjárræktin á Syðra-Skörðugili
Nú er haustslátrun og sauðfjárskoðunum lokið haustið 2009. Niðurstöðurnar liggja fyrir og erum við mjög ánægð með árangur erfiðisins. Lömbin eru heldur þyngri og vænni en þau hafa oft verið og bæði kom slátrun og lambaskoðunin mjög vel út. Það fæddust rétt um 950 lömb og gékk sauðburður mjög vel í vor. Helstu niðurstöður haustsins eru eftirfarandi:
706 lömb á sláturhús 17,18 kg meðalþungi - gerð 10,42 - fita 7,08
Áttum Skagafjarðarmetið í stigun lambhrúta þetta haustið - Lambhrútur undan Gust frá Syðra-Skörðugili sem er Hvells sonur fékk hvorki meira né minna en 89 stig.
Lambhrútur undan Raft sem við eigum mældist með 39 í bakvöðva og fékk þ.a.l 10 fyrir bak - alls fékk þessi hrútur 87,5 stig. Því miður var þessi hrútur með rana og fékk því ekki nema 7 fyrir haus - engu að síður frábær hrútur sem var auðvitað settur til lífs.
Alls voru settir á 8 lambhrútar og 123 gimbrar. Gimbrarnar voru alveg frábærar þetta haustið og var meðalþungi þeirra 40,5 kg sem er mjög gott.
Veturgömlu hrútarnir stiguðust einnig mjög vel og voru hrikalega þungir - sá þyngsti var 105 kg en oftast voru þeir svona um 90kg. Þeir voru allir mjög góðir og enginn einn sem skar sig sérstaklega úr.


Ný afstaðinn Aðalfundur Félags sauðfjárbænda í Skagafirði.
Þar hlaut ræktunarbúið tvenn verðlaun. Annars vegar fyrir besta lambhrútinn haustið 2008. Bolur frá Syðra-Skörðugili sem er
undan Kroppi. Síðan hlaut Kaldi frá Syðra-Skörðugili efsta sætið sem kynbótahrútur Skagafjarðar 2008. Stormur frá
Syðra-Skörðugili hafnaði í öðru sæti yfir efstu veturgömlu hrútana 2008. Stormur var efsti lambhrúturinn haustið 2007.

Elvar með verðlaunagripina 1.sæti besti lambhrúturinn 2008 & 1.sæti besti kynbótahrúturinn 2008.

Kaldi frá Syðra-Skörðugili besti kynbótahrútur Skagafjarðar 2008.



Landbúnaðarsýning 2005. 1-2 sæti Hækill frá Syðra-Skörðugili F: Frosti frá Hesti. Dómur haust 2004 87 stig (mynd 1)
Landbúnaðarsýning 2006. 1.sæti Pyttur frá Syðra-Skörðugili F: Brunnur frá Syðra-Skörðugili FF: Hylur frá Hesti. Dómur haust 2005 84,5 stig (mynd 2)
Landbúnaðarsýning 2007. 3.sæti Urriði frá Syðra-Skörðugili F: Brunnur frá Syðra-Skörðugili FF: Hylur frá Hesti. Dómur haust 2006 84,5 stig. (mynd 3)
Frá upphafi Landbúnaðarsýninga í Skagafirði höfum við tekið þátt í hrútasýningunni. Þetta eru alltaf mjög skemmtilegar sýningar og gaman að geta spáð í hina ýmsu hrúta. Við höfum verið á verðlaunapalli með hrút í öll skiptin og því náð mjög góðum árangri. Gaman að þessu og verður vonandi áframhald á þessum sýningum.
Sauðfjárræktin 2007.
Hér að neðan er ágrip sauðfjárræktarinnar 2007.
Við skulum byrja á vorinu. Sauðburður gékk mjög vel hjá okkur sl.vor. Veturgömlu ærnar brugðust okkur þó dálítið þar sem alltof stór hluti þeirra voru einlemdar. Ekki þurftum við mikið að sinna burðarhjálp sem betur fer því nóg annað var um að vera. Lambféð er haft í fjárhúsunum en óborið í hlöðunni. Við dreifðum burðinum þetta árið og létum gemlinga og veturgamalt bera fyrr en þær eldri. Það kom mjög vel út og fengum við því smá pásu áður en eldri ærnar byrjuðu að bera. Einnig sæddum við margar og báru þær því fyrstar og voru komnar út úr húsunum áður en fyrsta hrinan byrjaði. Í sauðburðarlok voru á lífi 780 lömb.
Við vorum einungis tvö í þessu hjónin (að ógleymdum dætrunum sem hjálpuðu að sjálfsögðu helling til) í ár og gékk það bara betur heldur en sl.ár. Enda er mín kenning sú að maður hugsar best um hlutina ef um eigin hagsmuni er að ræða. Vinnufólk tekur sauðburðinum ekki eins alvarlega og eigandinn og því verkið oft unnið með hangandi hendi. Mikið var það nú samt dásamlegt að geta sofið heila nótt um miðjan júní eftir 1 1/2 mánaðar törn, það var vær blundur hjá frúnni á bænum.



Við rákum síðan á fjall 20.júní. Það var mikill og fallegur rekstur sem fór upp Reykjaskarðið í frábæru veðri. Við fórum ríðandi úr hlaði um tvö leytið með fríðu föruneyti. Það voru við hjónin ásamt dætrunum, Eyþór (sérlegur aðstoðarmaður okkar í sauðfjárræktinni) og fengum við svo til liðs við okkur Ágúst nokkurn sláturhússtjóra (töldum ráðlegt að semja um verðið á dilkunum sem fyrst !!!!) og mætti hann með fríðan flokk af fólki með sér.


Myndir frá fjallrekstrinum 2007.
Síðan gékk haustið í garð. Féð kom að mestu í leitirnar við fyrstu göngur 9.sept. Við heimtum rosalega vel og aldrei vantað eins lítið af fjalli. Vinnan við að draga í Staðarrétt hefur líklega aldrei verið eins mikil og marblettirnir á frúnni eftir því. Dilkurinn fylltist alltaf jafn óðum og hafði Elvar ekki við okkur að keyra heim fénum og endaði með því að við þurftum að fá lánaðann annan dilk til að nýta alla frábæru krakkana sem öskruðu út um allt í kringum mig 10S8 - Skörðugil. Vil ég nota tækifærið og þakka þessum frábæru krökkum sem aðstoðuðu okkur í réttinni.


Myndir úr Staðarrétt.
Féð var vel vænt og settum við tæp 200 stk beint á sláturhús en restin fór í það verk að naga kálið heima fyrir. Síðasta slátrun var síðan sl.föstudag ( 26.okt). Við fyrstu útreikninga er flokkunin þannig:
16.57 kg meðalvigt, 80% í flokka E & U og 10.43 meðaltal fyrir gerð.
Fyrir þá sem skilja þessar tölur þá er útkoman bara býsna góð og virðist vera á svipuðu róli og sl.ár. Erum við því bara mjög ánægð með útkomu og afrakstur ársins í sauðfjárræktinni. Ásetningurinn haustið 2007 eru 600 hausar (ær og hrútar). Við létum sóna og stiga hrútana í síðustu viku og gékk það vel. Erum með marga mjög góða hrúta og þá helst má telja sæðingshrúta undan Hvell og Grána en einnig tvo mjög góða hrúta undan heimahrútum, voru þeir ekkert síðri en sæðingshrútarnir og telst það jákvætt.
Ásetningurinn er nú á beit og bíður nóvember mánaðar. Vonumst við til að veðrið haldist skaplegt til að hægt verði að nýta beitina sem lengst enda heyforðinn ekkert til að hrópa húrra fyrir , háin brást töluvert í ár. Þetta verður vonandi skemmtilegur vetur og vonandi verður sauðburðurinn næsta vor frjósamur og auðveldur.


Haustið 2006 fórum við hjónin út í róttækar breytingar á húsunum. Alls erum við með um 600 fjár og ætlum okkur í fjöldann 700-750 (vonandi 2008-2009)
Við eigum gríða stóra þurrheyshlöðu sem notuð var á tímum þurrbagga (liðin tíð sem betur fer ) og því ekki í notkun sem slík í dag. Við ákváðum að innrétta hana fyrir fé og gerðum 5 hólf þar inni þar sem gefið er í gjafagrindum frá Límtré Vírnet (einnig snilldargræja) annan til þriðja hvern dag. Settum hlaupakött í loftið og keyptum okkur afrúllara (snilldartæki). Gjafirnar eru því mun léttari í dag heldur en var og bara gaman að gefa líkt og sést á hamingjusama Reykvíkingnum hér að neðan sem kom í heimsókn og hjálpaði til við gjafirnar.
Hér fyrir neðan er mynd af henni Fimmu sem vorið 2006 leitaði skjóls við húsvegg með lömbin sín tvö og náði ég þá þessari skemmtilegu mynd af henni við svalahurðina á íbúðarhúsinu. Á hinni myndinni sjást þær vinkonur Fimma og eigandinn Ásdís Ósk á góðri stund.





Þetta eru þær systur Barbí (vinstra megin) og Fimma (hægra megin) í eigu þeirra systra Viktoríu og Ásdísar.



Nauðsynlegt að eiga góðan smalahund þegar sauðféð er margt.

Börnin vita ekkert skemmtilegra en þegar sauðburðurinn hefst á vorin.